Innlent

Göngustígar á bólakafi á höfuðborgarsvæðinu

Snorri Másson skrifar
Frá Norðlingaholti í dag. 
Frá Norðlingaholti í dag.  Vísir/Bjarni

Gífurlegir vatnavextir hafa unnið skemmdir á vegum í Borgarfirði um helgina og göngustígar eru komnir á kaf á höfuðborgarsvæðinu. Þar þrefaldaðist rennslið í Bugðu í Norðlingaholti í gær.

Geysimikið gróðurlendi við Norðlingaholt og Rauðhóla er komið undir vatn eftir að áin Bugða flæddi yfir bakka sína um helgina. Sjá má afleiðingar þessa skýrt í myndbrotinu hér að ofan.

„Vorið er á leiðinni þó að við fáum alltaf hret af og til og kólnun. Svona atburðir eftir því hvenær þeir koma á vorin og hvað það er mikill snjór, þá eru þeir misstórir og ef þetta hefði gerst kannski í apríl, hefðum við kannski fengið meira langvarandi hlýnun og flóðið orðið stærra,“ segir Kristjana G. Eyþórsdóttir, sérfræðingur í vatnamælingum hjá Veðurstofunni.

Kristjana G. Eyþórsdóttir, sérfræðingur í vatnamælingum hjá Veðurstofunni.Vísir/Bjarni

Þetta er sem sagt síst eins slæmt og þetta gæti orðið, en í Borgarfirði er þetta þó ekki án afleiðinga.

Við Ferjukot nálægt Hvanneyri flæddi Hvítá yfir bakka sína með þeim afleiðingum að vegurinn fór í sundur að norðanverðu.

Á tveimur stöðum við Hvítársíðuveg gerðist slíkt hið sama en sums staðar hefur þegar verið gert við veginn.

Leysingar hafa viðsjárverðar afleiðingar í Borgarfirði.Aðsend mynd

„Það var mikil rigning í Borgarfirði í gær og hitinn fór upp fyrir átta gráður við Hvanneyri og sennilega ekki alveg svona hlýtt inn til landsins. En þar húrraði snjórinn niður, eins og í Andakílnum, þar kom mikil leysing úr Skarðsheiðinni og fór í Andakílsá,“ segir Kristjana.

Sjaldgæft er að Elliðaár flæði eins mikið yfir bakka sína og nú. Að sögn Eldfjalla og náttúruvárhóps Suðurlands má að hluta til rekja mikið flóðið til inngrips manna; nefnilega göngu- og hestabrúar, sem þrengir verulega að Bugðu. Áin var í dag komin alveg upp að brúargólfi.

Manngerð brú þrengir að Bugðu.Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands

Tengdar fréttir

Elliðaár flæða yfir bakka sína

Mikið vatn er í Elliðaám þessa stundina og áin flæðir yfir bakka sína, meðal annars í Víðidal við Breiðholtsbraut. Við Norðlingaholt og Rauðhóla eru stór gróðurlendi á kafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×