Lífið

Hættur í akademíunni eftir löðrunginn

Árni Sæberg skrifar
Chris Rock hefur eflaust brugðið þegar einn þekktasti leikari heims rak honum kinnhest á óskarsverðlaunahátíðinni.
Chris Rock hefur eflaust brugðið þegar einn þekktasti leikari heims rak honum kinnhest á óskarsverðlaunahátíðinni. Neilson Barnard/Getty Images

Leikarinn Will Smith hefur sagt sig úr bandarísku kvikmyndaakademíunni vegna hegðunar sinnar á óskarverðlaunahátíðinni á dögunum þegar hann löðrungaði grínistann Chris Rock.

Leikarinn segist jafnframt munu taka öllum refsingum sem stjórn akademíunnar ákveður að beita hann. Því hefur verið haldið fram að stjórnin íhugi að svipta Smith sínum einu óskarsverðlaunum, en hann vann til þeirra örskömmu eftir löðrunginn fræga.

Hann hlaut styttuna eftirsóttu fyrir besta leik í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni King Richard.

„Gjörðir mínar voru hneykslanlegar, sársaukafullar og óafsakanlegar,“ segir leikarinn í tilkynningu.

„Listi þeirra sem ég hef sært er langur, en á honum eru Chris, fjölskylda hans, margir vinir mínir og ástvinir, allir í áhorfendasalnum og áhorfendur heima í stofu um allan heim.

Þá segir hann að atvikið hafi dregið verðskuldaða athygli frá öðrum sigurvegurum kvöldsins. „Ég brást trausti akademíunnar. Ég svipti aðra tilnefnda og sigurvegara tækifærinu til að fagna og vera hampað fyrir frábært starf þeirra. Ég er niðurbrotinn,“ segir hann.

Framkvæmdastjóri akademíunnar segir stjórnina hafa samþykkt tafarlausa afsögn Smiths og að hún muni halda áfram refsingarferli fyrir brot gegn siðareglum akademíunnar.

Líkt og ítarlega hefur verið fjallað um í fjölmiðlum um heim allan sló Smith grínistann Chris Rock, sem var kynnir á óskarshátíðinni, flötum lófa eftir að sá síðarnefndi gerði grín að hári, eða öllu heldur hárleysi, eiginkonu hans. 

Jada Pinkett-Smith, eiginkona Smiths, glímir við sjálfsofnæmi sem veldur því að henni vex ekki hár á höfði.

Breska ríkisútvarpið greindi frá.


Tengdar fréttir

Rock að melta kinnhestinn: „Hvernig var helgin ykkar?“

Grínistinn Chris Rock er enn að melta kinnhestinn sem leikarinn Will Smith veitti honum á Óskarsverðlaunahátíðinni aðfaranótt mánudags. Rock kom fram í Boston í gærkvöldi í fyrsta skipti síðan uppákoman átti sér stað.

Fordæma kinnhestinn sem verður rannsakaður

Bandaríska kvikmyndakademían hefur fordæmt hegðun leikarans Wills Smith á nýafstaðinni Óskarsverðlaunafhendingu, þar sem Smith gaf grínistanum Chris Rock kinnhest í beinni útsendingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.