Klámið Gunnar Dan Wiium skrifar 6. apríl 2022 21:00 Athugasemd: Þessi pistill er ekki fyrir viðkvæma, en klárlega fyrir raðrúnkandi klámhunda Business or pleasure? er hún spurð á leið sinni inn í Bandaríkin. Hún er frá Svíþjóð, hún er týnd. Hún er á leið til L.A. og ætlar að verða fræg, 19 ára og fræg. Hún ætlar sér að verða klámmyndaleikonan, númer eitt. Hún stefnir hátt, tilbúin í nánast hvað sem er. Hún byrjar hefðbundið, með þetta unglingalúkk sem gamla kalla þyrstir í, fullir af losta missa þeir tímaskynið og stynja í fullri reisn. Hefðbundið kemur henni ekki langt, hún þarf að ganga lengra. Hún biður um grófara stöff, hún er bundin og flengd. Allir sýna hlýju en þegar cameran rúllar er harka og hrækt. Hún skrifaði undir skilmálana og ber að taka við því, orðunum, leðrinu, ofbeldinu. Hún er bara 19 en hún stefnir hátt, hún er týnd. Hún þarf að sanna sig, sjokkera. Nauðgun, bara leikur, nauðgararnir eru leikarar á setti. Leikstjórinn veit hvað hann vill. Tveir sem slá hana, kyrkja, og nauðga henni. Hún biður um að fá að hætta, þeir taka pásu og sýna henni blíðu því þeir eru leikarar. Hún vill ekki klára en hún verður. Þeir klára sig á henni, margir klukkutímar af ofbeldi fyrir smápening. Hún bað um þetta, markaðurinn fer fram á sviðsetta nauðgun, ofbeldi og hrák. Hún vill annan umboðsmann, hún vill þann sem kemur henni á toppinn. Til þess þarf hún að bera af, eitthvað sem engin hefur gert ennþá. Interracial double anal, aldrei gert áður. Hvíta unglingsdruslan sem vill ekkert meira en tvo svarta risakokks í rassgatið, hún er svo rík og svo hvít. Alein heima, foreldrar hennar í frí, hún er alltaf ein heima. Aumingja litla stelpan. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=Wqp3lLJbBh4">watch on YouTube</a> Þessi lýsing er söguþráður úr myndinni Pleasure sem sýnd er í Bíó paradís um þessar mundir. Ég sat þarna saman með konunni minni og fann fyrir sorg satt að segja. Sorg yfir því hvar við erum, hvar við erum í kynhvöt, hvar við erum hvað varðar kynjabundið og kerfisbundið comercial ofbeldi og sorg yfir þessu framboði af týndum sálum sem fóðra síhungraða eftirspurn. Eftirspurn eftir „sviðsettri“ hópnauðgun, ríddu mömmu þinni, pabba þínum, ömmu þinni og dóttur. Hvað sem kynhvötin vill, efst til hægri, SEARCH WINDOW og þú ert með það. Fantasían er tekin út frá ytri eldsneytisgjöf og í hvert skiptið verður senan að verða öðruvísi, grófari. Hvað veldur svo ofbeldinu veit ég ekki, eflaust einhver reiði eða heift. Afhverju þarf konan að vera í ól og ganga við hlið mér eins og tík, hundur og sleikja skóna mína áður en ég nauðga henni, kyrki og koka hana með mínum risa kokk í fullri reisn? Hendi henni svo bara í ruslið þegar ég er búið því hún skítug og öll í sæði. Hvað veldur þessu eiginlega? Mér finnst þetta sorglegt og þó að einhverjir kynfræðingar segja að klám sé hollt og að hægt sé að nálgast það nánast fairtrade, feminískt, onlyfans, heimagert með fullri stjórn á öllum aðstæðum þá er alltaf verið að mæta einhverri eftirspurn, markaði sem er týndur, týndur í dópamínfíkn. Því í raun snýst þetta ekkert um sjálfsfróun heldur dópamínið sem ég næ að kreysta út með efninu, kreista út með þessari 19 ára sem er skítug hóra og alein heima. Til að sannreyna hvort um fíkn í klám sé um að ræða hvet ég alla sem lesa og finna þessa tilfinningu, ónotin, til að gera smá tilraun. Komið aftur í kjarnan, komið tilbaka í sjálfsfróunina. Lokið augum og notist við ykkar eigin myndir, hugmyndir. Fyrir suma mun þetta taka tíma því ykkar eigin myndasmiðja hefur verið out of business í mörg ár, finnið þessa smiðju og opnið fyrir hana. Stundið mikla sjálfróun en stundið hana af sjálfbærni, það er áskorun því auðveldasta leiðin er að opna browserinn og leiðast þar inn í að vera mataður af rusli og þjáningu. Browserinn þar sem þið finnið 19 ára stelpur, stráka og eflaust yngri líka. Samviskan kallar á sjálfbærni og hefðbundin klámneysla eins og svo margir eru fastir í hefur skýr og greinilega áhrif á viðhorf okkar og samskipti hvort sem þau eru kynjabundin eða ekki. Þessi lýsing er einungis út frá eigin reynslu og upplifun. Þessari lýsingu ber ekki að taka sem er heldur aðeins sem mögulegri vídd innan mennskunar. Allt ber að skoða og þá sérstaklega á tímum þar sem er talað um núll tolerance fyrir ofbeldi, kynjabundnu í allar áttir. Höfundur starfar sem smíðakennari og þáttastjórnandi hlaðvarpsins Þvottahússins. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bíó og sjónvarp Klám Gunnar Dan Wiium Mest lesið Börnin í Laugardal eiga betra skilið Róbert Ragnarsson Skoðun Aðalsteinn, finnst þér þetta vera í lagi? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Lausnin við öllum vandamálum menntakerfisins Stein Olav Romslo Skoðun Skósveinar í Samfylkingunni? Teitur Atlason Skoðun Borgarstjóri sem dreifir valdi Bjarni Karlsson Skoðun Hreint ekki eins og atvinnuviðtal Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skál fyrir betri heilsu! Lára G. Sigurðardóttir,Valgerður Rúnarsdóttir Skoðun Ákærandi, dómari og böðull Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Kæra Hanna Katrín, lengi getur vont versnað Vala Árnadóttir Skoðun Af bambus í Vesturbugt og 14 mínútna leikriti Páll Jakob Líndal Skoðun Skoðun Skoðun Lestrarkennsla íslenskra barna Ingibjörg Kristín Jónsdóttir skrifar Skoðun Er Kópavogsmódelið fullkomið ? Gunnar Gylfason skrifar Skoðun Orðum fylgir ábyrgð – líka þegar rætt er um loftslagsbreytingar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Uppbygging félagslegs húsnæðis – með fólkið í forgrunni Ellen Calmon skrifar Skoðun Guðmundur til þjónustu í velferðarmálum Guðbjörg Sveinsdóttir,Arndís Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Orðræða sem sameinar – ekki sundrar Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af bambus í Vesturbugt og 14 mínútna leikriti Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Skál fyrir betri heilsu! Lára G. Sigurðardóttir,Valgerður Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Guðmund Inga í 3. sætið Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Skósveinar í Samfylkingunni? Teitur Atlason skrifar Skoðun Ákærandi, dómari og böðull Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Lausnin við öllum vandamálum menntakerfisins Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Borgarstjóri sem dreifir valdi Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Áætlun um öryggi og fjárfestingu í innviðum Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki hægt að jafna dánaraðstoð við sjálfsvíg Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hreint ekki eins og atvinnuviðtal Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Aðalsteinn, finnst þér þetta vera í lagi? Ingólfur Ásgeirsson skrifar Skoðun Börnin í Laugardal eiga betra skilið Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Stjórnmálamaður metinn að verðleikum Þórarinn Snorri Sigurgeirsson skrifar Skoðun Magnea Marinósdóttir á brýnt erindi í borgarstjórn Hörður Filippusson skrifar Skoðun Borgin sem við byggjum er borg allra Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Evrópa lætur ekki undan hótunum Trumps um Grænland Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Rödd ungs fólks Nanna Björt Ívarsdóttir skrifar Skoðun Eflingarfólk! Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Lesblindir sigurvegarar Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Steinunn er frábær! Flosi Eiríksson skrifar Skoðun Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen skrifar Skoðun Þegar fullveldi smáríkja er ekki lengur sjálfsagt Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Rasismi er ekki „hægri“, hann er bara bjánalegur Elliði Vignisson skrifar Skoðun Byggjum fyrir fólk Hafdís Hanna Ægisdóttir,Hjördís Sveinsdóttir,Silja Elvarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Guðmundur til þjónustu í velferðarmálum Guðbjörg Sveinsdóttir,Arndís Vilhjálmsdóttir skrifar
Skoðun Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen skrifar