Lífið

Íbúðaskipti í Vesturbænum: „Verðhugmynd allt að 120 milljónir“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Íbúðin hefur vakið töluverða athygli á Fasteignavef Vísis í dag.
Íbúðin hefur vakið töluverða athygli á Fasteignavef Vísis í dag. Samsett/fasteignaljosmyndun

Á Fasteignavef Vísis er nú til sölu fjögurra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi í Lynghaga. Athygli vekur að ekkert verð er skráð á auglýsinguna, eignin er eingöngu til sölu í skiptum fyrir stærri íbúð í Vesturbæ Reykjavíkur eða næsta nágrenni.

Kemur fram í lýsingunni að fjölskyldan vilji stærri íbúð í staðin, sem hún sé tilbúin að greiða allt að 120 milljónir fyrir. Fasteignamat íbúðarinnar er 64.400.000 en beðið um tilboð í eignina. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi en hún er á efstu hæð í fjögurra hæða fjölbýlishúsi.

Eins og sjá má á myndunum á Fasteignavefnum er þetta björt og sjarmerandi 118,3 á góðum stað í Vesturbænum.

Fasteignaljósmyndun
fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
fasteignaljósmyndun
fasteignaljósmyndun
fasteignaljósmyndun





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.