Innlent

Eru í sam­keppni við af­mælis­veislur og vinnu­staða­partý

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Smári Jökull Jónsson skrifa
Margir tengja keilu við afmælisveislur, fyrirtækjaskemmtanir og partý en formaður Keilusambandsins segiir að þeir sem stundi keilu á Íslandi þurfi sína eigin aðstöðu.
Margir tengja keilu við afmælisveislur, fyrirtækjaskemmtanir og partý en formaður Keilusambandsins segiir að þeir sem stundi keilu á Íslandi þurfi sína eigin aðstöðu. Vísir/Skjáskot

Æfingaaðstaða fyrir þá sem stunda keilu hér á landi er slæm að sögn formanns keilusambandsins. Iðkendur eru í samkeppni við afmælisveislur og vinnustaðapartý.

Aðsókn hefur verið í keilu sem íþrótt hér á landi en hún hefur farið minkandi vegna aðstöðuleysis. Hér á landi eru aðeins 22 keilubrautir í Egilshöllinni og þrjár á Akranesi.

Margir tengja þetta rými við afmælisveislur, fyrirtækjaskemmtanir og partý. Formaður Keilusambandsins segir að slíkt samkomurými fari illa saman við æfingaaðstöðu íþróttar.

„Það er takmarkaður tími sem við höfum hér inni, einfaldlega því við erum í samkeppni við almenning sem leikur sér í keilu eins og við hin. Okkur vantar meiri tíma og við þurfum meira brautarpláss en almenningur,“ segir Jóhann Ágúst Jóhannsson formaður Keilusambands Íslands í samtali við Elísabetu Ingu Sigurðardóttur í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Aðstaðan er því ekki upp á marga fiska fyrir þá sem stunda keilu sem íþrótt.

Jóhann Ágúst er formaður Keilusambands Íslands.Vísir

„Okkur vantar okkar eigin aðstöðu þar sem við ráðum tímanum alfarið sjálf og getum þar af leiðandi fjölgað inn í íþróttina því við teljum okkur eiga efni á því að fjölga iðkendum,“ bætir Jóhann við.

Íþróttin kalli nefnilega á einbeitingu hjá öllum aldurshópum.

„Þetta er svona svipað, þó þetta sé hálf leiðinlegur samanburður, þá má líkja þessu við það að á sama tíma og það er landsleikur í fótbolta í Laugardalnum þá væri einhver bumbubolti fyrir aftan eitt markið og boltinn endalaust að koma inn á og trufla leikinn. Það er eiginlega bara þannig.“

Aðstöðuleysið er það slæmt að okkar efnilegasta fólk í keilu getur ekki iðkað íþróttina hér á landi.

„Þar má nefna Arnar Davíð sem vann Evróputúrinn árið 2019. Hann fór beint út eftir að hann kom heim í eitt ár því hann sá að hann hefði ekki tíma til að æfa hérna. Hann bara komst ekki að,“ segir Jóhann Ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×