Musk, sem helst er þekktur sem stofnandi og eigandi bílaframleiðandans Tesla og geimfyrirtækisins SpaceX, hefur gert 43 milljarða dollara kauptilboð í allt hlutafé Twitter.
Hann á nú þegar 9,2 prósent í fyrirtækinu eins og greint hefur verið frá
Musk hefur verið gagnrýninn á stefnu samfélagsmiðilsins þegar kemur að tjáningarfrelsi. Twitter er stofnað árið 2006 og samfélagsmiðillinn er einn sá mikilvægasti í heimi. En ákvarðanir stjórnenda um að ritskoða eitt og annað í nafni heilbrigðs lýðræðis eru í auknum mæli umdeildar á meðal Bandaríkjamanna; samanber ákvörðunina um að banna Trump í aðdraganda síðustu forsetakosninga þar í landi.
Stjórn Twitter hefur gripið til varna og gefið út að gamalt bragð verði dregið upp úr pokahorninu til að koma í veg fyrir yfirtöku Musk á Twitter, eins og fjallað var um á Vísi á dögunum.
Í frétt Financial Times sem birtist í morgun segir þó að stjórn Twitter sé á milli steins og sleggju, þrýstingur á hana komi úr mörgum áttum eftir yfirtökutilboð Musk.
Musk greindi frá því í gær að hann væri búinn að tryggja sér fjármögnun til að standa við yfirtökutilboðið. Stjórn Twitter er sögð vera undir þrýsting að ýmist ganga til samninga við Musk, eða finna aðra fjársterka fjárfesta sem gætu keppt við Musk.
Telja Twitter geta vaxið hraðar en raunin hefur verið
Þannig segir í frétt Financial Times að vonir standi til þess að tilboð Musk geri það að verkum að Twitter verði keypt og tekið af markaði, hvort sem hann eða einhvar annar ótilgreindur aðili standi fyrir því.
„Twitter hefur verið þróað til að ná aðeins brotabroti af möguleikum sínum,“ er haft eftir ónefndum fyrrverandi stjórnarmanni Twitter í frétt Financial Times. „Já, það ætti að vera tekið af markaði. Það er heimur þar sem fyrirtækið getur skapað sér tíu til hundrað sinnum stærri markað.“
Haft er eftir öðrum ónafngreindum fjárfesti sem sérhæfir sig í fjárfestingum í tæknifyrirtækjum að mögulega sé stjórn Twitter föst á milli þess að þykja tilboð Musk ekki nógu gott, en geta sjálf ekki komið því til leiðar að Twitter vaxi og dafni.
Vöxtur Twitter hefur verið hægari en vöxtur samfélagsmiðla á borð við Facebook og LinkedIn.
Í frétt Financial Times kemur einnig fram að Thoma Bravo, fjárfestingafélag sem sérhæfir sig í yfirtökum á tæknifyritækjum, og á yfir 100 milljarða dollara í eignir, hafi sett sig í samband við Musk í þeim tilgangi að ræða mögulega aðkomu Thoma Bravo að yfirtökunni.