Merki um kvikusöfnun austan við Fagradalsfjall Kristján Már Unnarsson skrifar 29. apríl 2022 17:24 Aðalgígurinn í Fagradalsfjalli í desember þegar kvika nálgaðist síðast yfirborð. Því kvikuinnskoti lauk án eldgoss. Stöð 2/Egill Vísbendingar eru um kvikusöfnun á talsverðu dýpi austan við Fagradalsfjall. Engin merki eru þó um að kvika sé að nálgast yfirborð.
Þetta kemur fram í yfirlitsgrein á vef Veðurstofu Íslands um þróun mála á Reykjanesskaga frá því gosinu við Fagradalsfjall lauk um miðjan september síðastliðið haust. Þar segir að mikilvægt sé að vakta áfram virkni á skaganum. „Frá því að gosinu við Fagradalsfjall lauk hefur skjálftavirkni á Reykjanesskaganum verið talsverð og það sem af er þessu ári hafa um 5.400 skjálftar mælst. Skjálftavirknin hefur verið bundin við nokkur svæði, þar á meðal Reykjanestá, svæði norður af Grindavík, Fagradalsfjall og Kleifarvatn,“ segir í greininni. Skjálftavirkni á Reykjanesskaga frá áramótum og til 25. apríl. Vel sést hvernig virknin hefur verið bundin við nokkur svæði; Reykjanestá, svæði norður af Grindavík, Fagradalsfjall og Kleifarvatn.Veðurstofan „GPS-mælanetið á Reykjanesskaganum, sem nemur færslur á yfirborði jarðar, sýnir víðáttumikið þenslumerki sem bendir til kvikusöfnunar á meira en 16 kílómetra dýpi austan við Fagradalsfjall. Engar landbreytingar eru merkjanlegar sem gætu bent til þess að kvika sé að nálgast yfirborðið eins og greint var frá í tengslum við jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall í lok síðasta árs. Nýlegar InSAR gervitunglamyndir eru í samræmi við það sem sést á GPS mælum,“ segir ennfremur. Svæðið austan Fagradalsfjalls þótti í byrjun mars í fyrra, tveimur vikum áður en gosið braust upp í Geldingadölum, líklegasta upptakasvæði eldgoss, en þá var flogið yfir svæðið í þessari útsendingu: Sérfræðingar Veðurstofunnar reyna ennfremur að leggja mat á skjálftahrinuna við Reykjanestá. Segir Benedikt G. Ólafsson, sérfræðingur á sviði jarðskorpuhreyfinga, að á Reykjanesskaganum eigi sér stað flókin víxlverkun á milli virkni vegna kviku og virkni vegna flekamóta og erfitt getið verið að greina á milli. Frá Reykjanesi. Eldey sést úti við sjóndeildarhringinn.Einar Árnason Hrinan á Reykjanestá gæti hafa verið vegna kvikuhreyfinga en ekki sé þó hægt að fullyrða um slíkt. „Það eru allavega engar sjáanlegar landbreytingar sem benda til kvikuhreyfinga vestast á nesinu“, segir Benedikt. „Það er ljóst að ennþá er talsverð virkni á öllum Reykjanesskaganum og í raun ekki hægt að útiloka að virknin geti aukist, en hvar og hvenær er erfitt að segja til um nákvæmlega,“ segir Sara Barsotti, fagstjóri eldfjallavár, í grein Veðurstofunnar. „Það er þensla í gangi sem bendir til kvikusöfnunar og á meðan að hún er í gangi þurfum við að vera á tánum og vera tilbúin fyrir ákveðnar sviðsmyndir ef til eldgoss kemur. Þar getur verið um að ræða eldgos svipuðu því sem við sáum við Fagradalsfjall þar sem talsverð gasmengun fylgdi gosinu. Eins þurfum við að búa okkur undir eldgos nálægt ströndinni, jafnvel neðansjávar, en slíku eldgosi gæti fylgt öskufall“ segir Sara. Hér má rifja upp aukafréttatíma Stöðvar 2 kvöldið sem eldgosið hófst þann 19. mars í fyrra:
Jarðhræringar á Reykjanesi Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Tengdar fréttir Eldgos í sjó út af Reykjanesi gæti sent ösku yfir Reykjavíkursvæðið Jarðskjálftahrinan út af Reykjanestá síðustu daga er áminning um að eldgos þar í sjó geti sent ösku yfir Reykjavíkursvæðið, að mati jarðeðlisfræðings. Komið hefur í ljós að hluti skjálftavirkninnar reyndist stafa frá skurðgröfu við Reykjanesvita. 19. apríl 2022 21:10 Fylgjast grannt með jarðskjálftavirkni Töluverð jarðskjálftavirkni hefur verið við Fagradalsfjall og við gosstöðvarnar í Geldingadölum síðan í síðustu viku. Að minnsta kosti tveir jarðskjálftar yfir tveimur mældust á svæðinu í nótt og í morgun. Náttúruvársérfræðingur segir ekkert benda til þess að möguleg kvikusöfnun sé nálægt yfirborðinu en áfram er fylgst með jarðskjálftavirkni. 18. apríl 2022 11:06 Kvika á leið upp helmingi minni en fyrir síðasta gos Ný gervihnattagögn benda til að kvikan undir Fagradalsfjalli sú núna á um fimmtánhundruð metra dýpi og virðist hún hafa þrýst sér upp um eitthundrað metra á síðustu fimm dögum. Jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu telur enn helmingslíkur á gosi. 4. janúar 2022 21:22 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira
Eldgos í sjó út af Reykjanesi gæti sent ösku yfir Reykjavíkursvæðið Jarðskjálftahrinan út af Reykjanestá síðustu daga er áminning um að eldgos þar í sjó geti sent ösku yfir Reykjavíkursvæðið, að mati jarðeðlisfræðings. Komið hefur í ljós að hluti skjálftavirkninnar reyndist stafa frá skurðgröfu við Reykjanesvita. 19. apríl 2022 21:10
Fylgjast grannt með jarðskjálftavirkni Töluverð jarðskjálftavirkni hefur verið við Fagradalsfjall og við gosstöðvarnar í Geldingadölum síðan í síðustu viku. Að minnsta kosti tveir jarðskjálftar yfir tveimur mældust á svæðinu í nótt og í morgun. Náttúruvársérfræðingur segir ekkert benda til þess að möguleg kvikusöfnun sé nálægt yfirborðinu en áfram er fylgst með jarðskjálftavirkni. 18. apríl 2022 11:06
Kvika á leið upp helmingi minni en fyrir síðasta gos Ný gervihnattagögn benda til að kvikan undir Fagradalsfjalli sú núna á um fimmtánhundruð metra dýpi og virðist hún hafa þrýst sér upp um eitthundrað metra á síðustu fimm dögum. Jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu telur enn helmingslíkur á gosi. 4. janúar 2022 21:22