Útkall um að maður hefði hrapað í skriðu við Stafsnes, vestan við Herjólfsdal í Vestmannaeyjum, barst rétt fyrir klukkan hálf tólf. Björgunarsveitarfólk fór bæði land- og sjóleiðina á slysstað og var komið þangað um hálftíma eftir að útkallið barst.
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúar Landsbjargar, segir aðstæður á vettvangi hafa verið erfiðar, brattlendi og laus skriða. Björgunarsveitarfólk hlúði að manninum en óskað var eftir aðstoð þyrlu til að koma honum þaðan svo ekki þyrfti að bera hann upp skriðuna.
Sá slasaðist hlaut meðal annars skurð á höfuðið en Davíð Már hafði ekki frekari upplýsingar um meiðsl hans.