Lífið samstarf

Möndlu­smjör­spott­réttur að hætti Helga Jean

Nettó
Helgi Jean fær skemmtilega gesti til sín í þáttinn Get ég eldað? Fyrsti gestur er grínistinn Hjálmar Örn og hjálpast þeir að við að elda girnilegan pottrétt.
Helgi Jean fær skemmtilega gesti til sín í þáttinn Get ég eldað? Fyrsti gestur er grínistinn Hjálmar Örn og hjálpast þeir að við að elda girnilegan pottrétt.

Hjálmar Örn er fyrsti gestur hlaðvarpsstjörnunnar Helga Jean í glænýjum matreiðsluþætti sem ber heitið Get ég eldað? en nafnið má rekja til þess að aðeins er ár síðan Helgi byrjaði að elda. Fram að því hafði hann enga trú á eldamennsku en segir hana hafa bætt líf hans til muna og nú gerir hann stanslausar tilraunir í eldhúsinu.

Markmið þáttarins er að elda einfaldan og góðan mat án fyrirhafnar og mun Helgi fá til sín góða gesti í hvern þátt. Í þessum fyrsta þætti elda þeir Hjálmar og Helgi möndlusmjörspottrétt. Allt hráefnið í réttinn fæst í Nettó

Klippa: Möndlusmjörspottréttur að hætti Helga Jean

Uppskrift fyrir 3-4 

  • 1 dós kókosmjólk
  • 1 400gr dós aduki baunir*
  • 1 bolli villt hrísgrjón
  • 400gr sætar kartöflur
  • 200gr blómkál
  • 1 lítil rauð paprika
  • 200gr / 1 bolli ferskir tómatar
  • 1/2 laukur
  • 1/2 bolli vatn
  • 2 msk möndlusmjör 
  • 1/2 bolli döðlur 
  • 1 tsk curry 
  • 1/2 tsk oregano 
  • 1/2 tsk thyme 
  • 1/2 tsk chili S&P
  1. Byrjið á því að setja vatn í pott ásamt hrísgrjónum, sjóðið samkvæmt leiðbeiningum.
  2. Fínskerið laukinn og steikið á vægum hita þar til mjúkur og ilmandi.
  3. Skerið sætar kartöflur í litla bita ásamt tómötum, blómkáli og papriku.
  4. Bætið kryddum og tómötum við laukinn og blandið vel.
  5. Þegar tómatarnir eru orðnir mjúkir, bætið restinni af grænmetinu út í ásamt kókosmjólk og vatni.
  6. Fáið upp væga suðu og lokið fyrir. Látið sjóða í u.þ.b. 20 mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt og hrærið reglulega.
  7. Bætið aduki baunum út í og lækkið hitann. Látið malla í 10 mínútur í viðbót.
  8. Þegar pottrétturinn hefur aðeins kólnað og allt grænmetið er orðið mjúkt ætti blandan að vera orðin aðeins þykkari.
  9. Berið fram með villtu hrísgrjónunum.

(Uppskrift unnin frá Fræ.com)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.