Erlent

Nauðgunar­mál­sókn gegn Ron­aldo vísað frá dómi

Árni Sæberg skrifar
Cristiano Ronaldo leikur með Manchester United á Englandi.
Cristiano Ronaldo leikur með Manchester United á Englandi. Martin Rickett/PA Images via Getty Images

Málsókn Kathryn Mayorga á hendur knattspyrnumanninum Cristiano Ronaldo hefur verið vísað frá dómi í Las Vegas í Bandaríkjunum. Mayorga sakaði Ronaldo um að hafa nauðgað henni í borginni árið 2009. Hún fór fram á 25 milljónir dollara í skaðabætur.

Það var í lok september árið 2018 sem Mayorga steig fram í viðtali við þýska blaðið Der Spiegel þar sem hún sakaði Cristiano Ronaldo um að hafa nauðgað sér.

Hin meinta nauðgun á að hafa átt sér stað árið 2009 og á Ronaldo að hafa greitt henni um 43 milljónir króna árið 2010 fyrir að segja ekki frá málinu opinberlega. Saksóknarar í Las Vegas ákváðu að ákæra Ronaldo ekki þegar Mayorga tilkynnti lögreglu meintu nauðgunina.

Eftir að hún steig fram opinberlega var málið tekið til rannsóknar á ný en fellt niður endanlega árið 2019

Mayorga höfðaði þá einkamál gegn Ronaldo þar sem hún fór fram á 25 milljónir dollara í skaðabætur, eða um 3,3 milljarða króna. Meðal málsástæðna hennar var að hún hafi ekki verið hæf til að samþykkja þagnarskyldusamning árið 2009 enda hefði hún glímt við námsörðuleika sem barn.

Dómarinn í málinu ákvað að vísa málinu frá af réttarfarsástæðum en hann sagði lögmann Mayorga hafa nýtt sér stolin og lekin gögn í annarlegum tilgangi. Það hafi litað málflutning hennar svo mikið að engin önnur leið væri fær en að vísa málinu frá dómi, að því er segir í frétt AP um málið.


Tengdar fréttir

Cristiano Ronaldo segir árið 2018 það versta

Cristiano Ronaldo segir að nauðgunar ásakanirnar sem bornar voru upp á hann á síðasta ári gerðu það að verkum að það ár væri það versta á ferlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×