Yfirgefur Fram og fer til föður síns í Þorpinu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. júní 2022 15:00 Alexander Már Þorláksson og Jón Sveinsson, þjálfari Fram. Alexander Már mun halda til Akureyrar þegar félagaskiptaglugginn opnar. Fram Framherjinn Alexander Már Þorláksson hefur samið við Þór Akureyri í Lengjudeildinni og mun færa sig um set þegar félagaskiptaglugginn opnar á næstu dögum. Hann kemur frá Fram í Bestu deildinni þar sem tækifæri hafa verið af skornum skammti.
Þórsarar greindu frá félagaskiptunum á samfélagsmiðlum sínum. Þar kemur fram að Alexander Már muni yfirgefa Fram um leið og félagaskiptaglugginn opnar þann 29. júní næstkomandi. Athygli vekur að Þorlákur Árnason, faðir framherjans, er þjálfari Þórs. Á Alexander Már að fylla skarðið sem Je-wook Woo skilur eftir sig en sá gekk í raðir Þórs fyrir tímabilið. Fótbolti.net greindi frá að Woo hafi þurft að halda heim á leið vegna meiðsla og fjölskylduaðstæðna. Alexander Már hefur spilað með Fram í Bestu deildinni í sumar og þar áður í Lengjudeildinni. Skoraði framherjinn sjö mörk í 17 leikjum er liðið gjörsigraði Lengjudeildina síðasta sumar. Hann hefur komið víða við og spilað með ÍA, Hetti og KF ásamt því að spila fyrir Fram undanfarin ár. Alls hefur Alexander Már skorað 17 mörk í 40 leikjum í Lengjudeildinni en hann er einn fárra Íslendinga sem hefur skorað í efstu fjórum deildum Íslandsmótsins. Alexander Már skilur við Fram í 8. sæti Bestu deildarinnar með 10 stig að loknum 10 leikjum. Þór Ak. er hins vegar í 10. sæti Lengjudeildarinnar með fimm stig að loknum sjö leikjum.
Fótbolti Íslenski boltinn Lengjudeild karla Þór Akureyri Fram Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Sjá meira