Umfjöllun: Noregur-Norður-Írland 4-1 | Norska liðið átti ekki í vandræðum í frumsýningunni Hjörvar Ólafsson skrifar 7. júlí 2022 20:52 Frida Maanum, Ingrid Syrstad Engen, Guro Reiten, Ada Hegerberg og liðsfélagar þeirra hjá norska liðinu léku við hvurn sinn fingur á St. Mary's-leikvangnum í kvöld. Vísir/Getty Noregur fer vel af stað á Evrópumótinu í fótbolta kvenna en liðið vann afar sannfærandi 4-1 sigur þegar liðið mætti Norður-Írlandi í seinni leik fyrstu umferðar í A-riðli mótsins í dag. England hafði betur gegn Austurríki í A-riðlinum í fyrsta leik mótsins í gær. Julie Blakstad, Frida Leonardsen Maanum og Caroline Graham Hansen skoruðu mörk norska liðsins sem nýttu sér slakt uppspil norður-írska liðsins og klaufagang í varnarleik þeirra í mörkunum þremur. Mark Hansen kom úr vítaspyrnu en Noregur var 3-0 yfir í hálfleik og nánast var mögulegt að bóka norskan sigur. Julie Nelson, sem lék á árum áður með ÍBV, klóraði þó í bakkann fyrir Norður-Írland í upphafi seinni hálfleiks en hún skoraði eftir sendingu frá Rachel Furness, sem lék um skeið með Grindavík. Guro Reiten slökkti aftur á móti þann litla vonarneista sem gæti hafa kviknað hjá Norður-Írum við mark þeirra. María Þórisdóttir var á sínum stað í hjarta varnarinnar hjá Noregi og stóð sig með stakri prýði. Íslenska liðið mætir svo til leiks á sunnudaginn kemur þegar liðið etur kappi við Belgíu á æfingavelli Manchester City. Fótbolti EM 2022 í Englandi
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti