Að undanförnu hafa orðið miklar tafir á fjölda flugvalla víðs vegar um Evrópu, að meginstefnu til vegna manneklu en sumsstaðar einnig vegna verkfalla starfsfólks. Einna verst hefur ástandið verið á Schiphol flugvelli í Amsterdam. Icelandair flýgur daglega til borgarinnar.
„Þar var vél stopp, því það vantaði hlaðmenn og áhöfnin henti sér niður og byrjaði að hlaða vélina og afhlaða. Í kjölfarið fóru hlaðmenn með um borð til þess að bregðast við, svo við séum fljótari að koma vélinni aftur á tíma,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og markaðsmála hjá Icelandair.
Þá hefur starfsfólk Play að sama skapi hlaðið og afhlaðið vélar á þeim flugvöllum þar sem manneklan er hvað verst, samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu. Félagið hefur þó ekki sent hlaðmenn út.
Sylvía segir að þó kostnaður fylgi því að senda hlaðmenn til Amsterdam komi það ekki að sök.
„Því að það skiptir okkur líka máli að vera á réttum tíma og tryggja að við séum með þetta þjónustustig sem við viljum hafa.“
Félagið hafi ekki sótt innblástur annað þegar ákvörðun um að senda hlaðmenn út hafi verið tekin.
„Er þetta ekki bara svolítið íslenskt?“ spyr Sylvía.
„Við finnum út úr málunum og græjum og gerum. Ég hef ekki heyrt af öðrum vera að gera þetta, en það kann að vera.“
Ástandið leitt til niðurfellinga
Icelandair felldi niður um tvö prósent af áætluðum ferðum sínum til eða frá Keflavík í síðasta mánuði. Það erum fjórum sinnum fleiri ferðir en í júní árið 2019, sem var síðasta ferðasumarið fyrir Covid-faraldurinn. Sylvía segir ástæðuna einfalda.
„Það eru þessar aðstæður sem eru að skapast á flugvöllunum vegna manneklu, það svona seinkar og tefur. Þannig að við höfum þurft að grípa til þessara ráðstafana,“ segir Sylvía en bætir því þó við að félagið reyni þó eftir fremsta megni að koma farþegum á áfangastað samdægurs þegar ferðir eru felldar niður