Reglulegir lúrar tengdir við aukna hættu á heilablóðfalli og háum blóðþrýstingi Eiður Þór Árnason skrifar 25. júlí 2022 20:25 Niðurstöðurnar vekja upp spurningar um hvort það sé kominn tími á að fólk taki sér hvíld frá lúrunum. Getty/Morsa Images Fólk sem fær sér oft lúr er líklegra til þess að þróa með sér háan blóðþrýsting og fá heilablóðfall, ef marka má niðurstöður nýrrar umfangsmikillar rannsóknar. Aðstandendur hennar segja niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að horfa til svefns þegar kemur að því að leggja mat á áhættuna.
Sérfræðingur í svefnrannsóknum telur niðurstöðuna mögulega skýrast af því að fólk sem leggi sig reglulega yfir daginn geri það stundum í kjölfar slitrótts nætursvefns. Því eigi síður að draga þá ályktun að það sé beinlínis skaðlegt að fá sér lúr. Þetta hefur CNN eftir Michael Grandner, klínískum sálfræðingi sem stýrir Behavioral Sleep Medicine heilbrigðisstofnuninni í Tucson í Arizona. Hann tók ekki þátt í gerð rannsóknarinnar. Samkvæmt niðurstöðunum voru þeir þátttakendur sem tóku sér reglulega lúr yfir daginn 12 prósent líklegri til að þróa með sér háan blóðþrýsting og 24 prósent líklegri til að fá heilablóðfall samanborið við þann hóp fólks sem sagðist aldrei fá sér blund. Einnig voru þátttakendur undir sextugu sem lögðu sig flesta daga 20% líklegri til að fá háan blóðþrýsting en þeir sem gerðu það sjaldan eða aldrei. Sömu niðurstöður fengust þegar rannsakendur sigtuðu út fólk sem var í aukinni áhættu á að fá háþrýstingi. Þeirra á meðal voru þátttakendur með sykursýki 2, háan blóðþrýsting, hátt kólesteról, svefnraskanir og fólk sem vann á næturvöktum. Niðurstöðurnar voru birtar í fræðiritinu Hypertension í dag. Það er gefið út af samtökunum American Heart Association sem vinnur að málefnum hjarta- og æðasjúkdóma. Byggir á gögnum frá 360 þúsund Bretum „Niðurstöðurnar sýna að lúrar auka tíðni háþrýstings og heilablóðfalls eftir að tekið er mið af mörgum breytum sem vitað er að auka hættuna á hjartasjúkdómum og heilablóðfalli,“ segir Dr. Phyllis Zee, forstöðukona Center for Circadian and Sleep Medicine við læknisfræðideild Northwestern-háskólans í Chicago. Hún segir jafnframt í samtali við CNN að þetta sanni mikilvægi þess að heilbrigðisstarfsfólk spyrji sjúklinga sína út í lúrvenjur og hvort þeir upplifi óhóflega þreytu yfir daginn til að meta hættuna á þróun hjarta- og æðasjúkdóma. Zee tók ekki þátt í gerð umræddrar rannsóknarinnar. Ekki eru allir sérfræðingar sammála um að niðurstöðurnar gefi til kynna að sú iðja að taka sér blund yfir daginn hafi slæm áhrif á heilsu fólks með beinum hætti. Getty/Crispin la valiente Niðurstöðurnar byggja á gögnum frá 360 þúsund þátttakendum sem veittu UK Biobank upplýsingar um svefnvenjur sínar. Um er að ræða umfangsmikinn gagnagrunn með heilbrigðisupplýsingum en umsjónarmenn hans fylgdust með miklum fjölda Breta á árunum 2006 til 2010. Þátttakendur afhentu reglulega blóð-, þvag- og munnvatnssýni og svöruðu spurningum um tíðni lúra fjórum sinnum á fjögurra ára tímabili. Dr. Raj Dasgupta, dósent í læknisfræði við háskólann í Suður-Kaliforníu, gerir athugasemd við að höfundar rannsóknarinnar hafi ekki skilgreint hvað teljist sem lúr eða safnað upplýsingum um lengd þeirra. „Ef þú sofnar í klukkutíma eða 2 til dæmis, þá telst það varla lúr.“ Þá skuli hafa í huga að þátttakendur hafi sjálfir gefið upp tíðnina þar sem minni fólks sé misjafnlega nákvæmt. Blundur ekki það sama og blundur „Frískandi blundur sem er 15 til 20 mínútur, tekinn í kringum hádegi fram til 14 er 100 prósent það rétta í stöðunni ef þú ert svefnvana,“ bætir Dasgupta við en líkt og aðrir viðmælendur í frétt CNN hafði hann ekki neina aðkomu að umræddri rannsókn. Dasgupta segir ekki mælt með því að fólk sem þjáist af langvarandi svefnleysi leggi sig yfir daginn þar sem slíkt geri þeim erfiðara fyrir að sofna á næturnar. Flestir þeirra þátttakanda í rannsókninni sem lögðu sig reglulega yfir daginn reyktu sígarettur, drukku áfengi daglega, hrutu, glímdu við svefnleysi eða lýstu sér sem kvöldmanneskju. Margir þessara þátta gætu haft áhrif á gæði og magns svefns hjá þessum einstaklingum, að sögn Dasgupta. Slæmur svefn valdi því að fólk finni fyrir mikilli þreytu á daginn og geti því leitt til þess að það leggi sig óhóflega mikið. „Ég tel því að lúrar séu merki um undirliggjandi svefnraskanir hjá vissum einstaklingum.“ Slíkar raskanir séu tengdar við aukna streitu og hormónabreytingar sem geti leitt til offitu, háþrýstings og sykursýki 2. Allt séu þetta áhættuþættir þegar kemur að hjarta- og æðasjúkdómum.
Heilbrigðismál Svefn Mest lesið Færði féð yfir á eigin reikning til að losa frysta reikninga Innlent Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina Innlent Ekið á börn í annað sinn á sama tíma og sama stað Innlent Foreldrar í Garðabæ hvumsa yfir æfingagjöldum Innlent Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Erlent Ákváðu að vera opin gagnvart börnunum varðandi veikindin Erlent „Jafnvel Kringvarpið í Færeyjum flytur fréttir á ensku“ Innlent Uppgötvuðu svikin á fimmtudegi og kærðu aðfaranótt laugardags Innlent Erfitt að skilja drengina eftir í Suður-Afríku en jákvætt að þeir séu loks edrú Innlent Hafa uppgötvað djöflabýflugu Erlent Fleiri fréttir Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir borgarstjóranum Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Grænlenskir góðmálmar og seinagangur bankanna Sprengdi sig í loft upp við dómshús Nýtt spillingarmál skekur Úkraínu Kínverjar menga mest en standa sig samt best Ákváðu að vera opin gagnvart börnunum varðandi veikindin „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Hótar að kæra BBC fyrir einn milljarð dala „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Demókratar reiðir hver öðrum en aðallega reiðir Schumer Ætla ekki að endurskoða rétt samkynhneigðra til að giftast Sarkozy laus úr fangelsi Lagði til að forsætisráðherrann yrði afhöfðaður Sögð ætla að leita á náðir Trumps Skaut hreingerningakonu sem fór húsavillt Mótmæli gegn loftmengun í Nýju-Delí: „Ég sakna þess að anda“ Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Forstöðumaður BBC segir af sér vegna misvísandi umfjöllunar Saka Rússa um að ógna kjarnorkuöryggi í Evrópu Bretlandsher aðstoðar Belga vegna drónaflugs Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sjá meira