Evrópumeistarinn leiðir eftir fyrsta dag Íslandsmótsins Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. ágúst 2022 18:49 Perla Sól Sigurbrandsdóttir er í forystu eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í golfi. Mynd/Sigurður Elvar Þórólfsson Perla Sól Sigurbrandsdóttir, kylfingur úr Golklúbbi Reykjavíkur og nýkrýndur Evrópumeistari 16 ára og yngri í golfi, er með tveggja högga forystu eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í golfi sem hófst í dag.
Mótið fer fram í Vestmannaeyjum, en Perla lék holurnar 18 í dag á 70 höggum, eða á pari vallarins. Þær Ragnhildur Kristinsdóttir, Berglind Björndóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir eru næstar á eftir Perlu, en þær eru einnig allar úr Golfklúbbi Reykjavíkur, GR. Ragnhildur er í öðru sæti á tveimur höggum yfir pari, Ólafía í þriðja sæti á fjórum höggum yfir pari og Berglind í fjórða sæti á fimm höggum yfir pari. Yfirburðir GR eru þó ekki algjörir því fjórir kylfingar eru jafnir í fimmta sæti og enginn þeirra úr GR. Það eru þær Heiða Guðnadóttir (Golfklúbbur Mosfellsbæjar), Andrea Ýr Ásmundsdóttir (Golfklúbbur Akureyrar), Heiðrún Anna Hlynsdóttir (Golfklúbbur Selfoss) og Guðrún Brá Björgvinsdóttir (Golfklúbburinn Keilir), en allar léku þær á sex höggum yfir pari.
Golf Íslandsmótið í golfi Mest lesið Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Handbolti Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma Fótbolti „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Enski boltinn Dauðvona maður kláraði heilan járnkarl Sport Ljótt brot á Arnóri: „Enginn annar hefði spilað með þessa verki“ Fótbolti BKG kveður keppinaut: CrossFit á viðkvæmum stað Sport Dagskráin í dag: Liverpool mætir þýsku meisturunum og nýr stjóri Man. Utd mætir Man. City Sport Meiddur Ödegaard gifti sig í leyni Enski boltinn Sá langelsti stóð upp úr í Suðurlandsslag Körfubolti Líst ekkert á að fertug Vonn snúi aftur: „Ég myndi dauðskammast mín“ Sport Fleiri fréttir Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira