Hver ber tjónið í netsvindli og hvernig á að krefja bankann um endurgreiðslu? Stefán Orri Stefánsson skrifar 31. ágúst 2022 08:00 Árlega eru sviknar út hundruð milljóna í netglæpum af einstaklingum og fyrirtækjum. Til að sporna gegn þeim hleyptu hagsmunaaðilar átakinu „Taktu tvær“ af stokkunum þar sem fólk er hvatt til að hugsa sig um í tvær mínútur áður en upplýsingar eru gefnar upp eða greiðsla framkvæmd. Átakið veitir ráð sem allir ættu að hafa í huga og er góðra gjalda vert. Aftur á móti ýtir það undir þá úreldu hugsun að neytendur einir beri ábyrgð á netsvikum. Þess vegna vil ég hvetja fólk til að „taka þrjár“ - sem sagt eina auka mínútu til að krefja bankann um endurgreiðslu svikanna því mögulega ber hann ábyrgðina. Nýlega var ráðist í herferð gegn viðskiptavinum Landsbankans. Eftirlíking af netbanka var sett upp og auglýsingar keyptar fyrir svikasíðuna í leitarvélum svo hún birtist efst. Þegar fólk leitaði að Landsbankanum og smellti á efstu niðurstöðu endaði það svo inni á svikasíðunni. Þar gaf það upp aðgangsupplýsingar sem tölvuþrjótarnir nýttu sér til að fara inn á raunverulegan aðgang fólksins og framkvæma millifærslur. Uppi sitja þrjátíu fórnarlömb með tjónið og bera alla ábyrgð á að hafa fallið í gildruna. Bankinn getur ekki haft vit fyrir viðskiptavinum sínum - það er alveg augljóst... eða hvað? Ný greiðsluþjónustulög Í nóvember í fyrra tóku gildi ný lög um greiðsluþjónustu (nr. 114/2021) þar sem er verulega skerpt á öryggiskröfum og í fyrsta skipti eru settar tæknireglur sem greiðsluþjónustuveitendum (bönkunum) ber að fara eftir. Auk þess kemur skýrt fram sú skoðun að ábyrgð á að tryggja örugg rafræn viðskipti liggur hjá bönkunum og einungis í undantekningartilfellum á viðskiptavinur að bera allt tjónið sjálfur. Það er þegar hann hefur sýnt af sér sviksamlegt athæfi eða stórfellt gáleysi. Ábyrgðin er færð yfir á bankana vegna þess að í mörgum tilfellum er erfitt fyrir venjulegt fólk að ganga úr skugga um að netbankar og netverslanir séu lögmætar. Hver ber tjónið? Landsbankinn segir að almennt beri viðskiptavinir tjónið sjálfir, ef þeir gefa upp innskráningarupplýsingar eða kortanúmer á svikasíðum. Ef við rýnum í nýju lögin sést greinilega að svo er ekki - meira þarf að koma til. Lagaleg krafa er að greiðslur séu staðfestar og það að gefa upp lykilorð eða kortanúmer felur ekki í sér staðfestingu á greiðslu. Köfum aðeins dýpra og skoðum nokkur dæmi. Staðfesta þarf greiðslu með ,,sterkri sannvottun'' sem ,,felur í sér þætti sem tengja greiðsluna með virkum hætti við tiltekna fjárhæð og tiltekinn viðtakanda greiðslu''. Það er ómögulegt að fara yfir lagalegu og tæknilegu atriðin þarna á bak við í stuttu máli en skoðum nokkur dæmi: Að gefa upp lykilorð eða kortanúmer en samþykkja ekki greiðslu (t.d. með því að slá inn öryggisnúmer sem var sent til staðfestingar) uppfyllir ekki kröfur um staðfestingu (64. gr. laganna). Að fá sent öryggisnúmer til að staðfesta greiðslu, en í skeyti sem inniheldur ekki upplýsingar um viðtakanda og fjárhæð, uppfyllir ekki kröfur um tengingu staðfestingu með virkum hætti (101 gr. laganna). Að staðfesta kreditkortafærslu úr netverslun með öryggisnúmeri sendu í síma uppfyllir ekki reglur Seðlabanka Íslands um sterka sannvottun viðskiptavina. Að staðfesta millifærslu með öryggisnúmeri sendu í SMS uppfyllir mjög líklega ekki reglur um sterka sannvottun þar sem ekki er hægt að tryggja leynd og heilleika smáskilaboða um farsímakerfi. Í öllum dæmunum að ofan hefur bankinn vanrækt að uppfylla lagalegar kröfur um rafrænar greiðslur og á því að bera tjón af netsvikum að fullu, nema viðskiptavinur hafi sjálfur tekið þátt í svikunum. Hvernig skal leita réttar síns? Hafi viðskiptavinur lent í netsvindli eða verður var við ókunnuga kortafærslu er nauðsynlegt að láta bankann vita af því sem allra fyrst. Krefjast skal að svikafærsla sé bakfærð og bankanum ber að verða við því fyrir lok næsta viðskiptadags. Neiti bankinn að verða við beiðni um bakfærslu svikanna ættu viðskiptavinir að óska eftir svörum við nokkrum spurningum: Óskaði bankinn eftir staðfestingu á greiðslunni? Uppfyllti staðfestingin reglur um sterka sannvottun sem felur í sér þætti sem tengja greiðsluna með virkum hætti við tiltekna fjárhæð og tiltekinn viðtakanda greiðslu? Getur bankinn afhent afrit af öllum gögnum tengdum greiðslunni, þar með talið afriti af staðfestingunni, sem sýni fram á ofangreind atriði? Hvaða forvarnir notaði bankinn til að verjast slíkum árásum? Í tilfelli svikasíðna - fylgdist hann með skráningum á lénum sem líkjast hans eigin (e. typosquatting)? Gerði bankinn ráðstafanir til að birtast efst í niðurstöðum leitarvéla? Gerði bankinn ráðstafanir til að greina og bregðast skjótt við svikum þegar tugir eða hundruðir féllu í sömu gryfju? Hvenær varð bankinn fyrst var við, eða honum tilkynnt um, svik sem voru hluti af sömu herferð? Var það áður en umræddur viðskiptavinur féll svo fyrir þeim? Framkvæmdi bankinn áhættugreiningu á greiðslunni áður en hún var framkvæmd? Tók sú greining tillit til mögulegra frávika frá greiðsluhegðun greiðanda og óvenjulegrar staðsetningar greiðanda eða móttakanda? Hver var niðurstaða greiningarinnar? Með hliðsjón af ofangreindu, telur bankinn viðskiptavininn hafa sýnt af sér stórfellt gáleysi? Sé ennþá ágreiningur um hver skuli bera tjónið er hægt að leita til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki og óska eftir að bankinn beri tjónið að fullu, til vara að tjón viðskiptavinar sé ekki hærra en jafnvirði 50 evra og til þrautavara að tjón viðskiptavinar sé takmarkað að teknu tilliti til aðstæðna, sbr. 80. gr. laganna. Málskotsgjald er 10.000 kr., sem fæst endurgreitt ef úrskurðað er neytanda í vil. Ágætt er að ráðfæra sig við Neytendasamtökin áður en leitað er með mál til nefndarinnar. Með hliðsjón af bókstaf og anda laganna og aðstöðumunar bankans og neytenda við að greina svikamynstur ætti að meta allan vafa neytendum í hag. Það skal þó tekið fram að engir úrskurðir hafa enn verið birtir varðandi ábyrgð gagnvart nýju lögunum. Bjartari tímar með betri neytendavernd Það getur verið erfitt að stunda bankaviðskipti og netverslun án þess að ganga í eina fjölmargra svikagildra sem er að finna á Internetinu. Neytendur hafa þó ekki endilega aðra valkosti - bankarnir hafa markvisst fækkað útibúum um allt land og lagt á gjöld fyrir þá sem vilja ekki nýta sér rafrænar lausnir. Sem betur fer taka ný lög um greiðsluþjónustu af öll tvímæli um að neytendur skuli ekki bera tjón af netsvikum nema í undantekningartilfellum. Þau eiga að skapa grundvöll fyrir því að neytendur geti óhræddir stundað netviðskipti án þess að þurfa að vera sérfræðingar í netöryggi. Höfundur er sérfræðingur í upplýsingaöryggi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Netöryggi Upplýsingatækni Neytendur Íslenskir bankar Netglæpir Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Sjá meira
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun