Davíð Snær: Var staðráðinn í að koma inn með krafti Hjörvar Ólafsson skrifar 1. september 2022 20:12 Daníel Snær Jóhannsson skorar hér sigurmark FH í leiknum í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Daníel Snær Jóhannsson gerði gæfumuninn þegar FH tryggði sér sæti í úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í kvöld. Daníel Snær skoraði markið sem skildi liðin að í 2-1 sigri FH auk þess að ná í vítaspyrnu sem fór reyndar forgörðum. „
Það er erfitt að koma inn í leik sem er spilaður á svona háu tempói en ég var var staðráðinn í að koma inn með miklum krafti. Mér fannst það takast vel og það var frábært að ná að skora sigurmarkið," sagði Davíð Snær sem var hetja FH í þessum leik. Steven Lennon brenndi af vítaspyrnu sem Davíð Snær nældi í skömmu eftir að hann kom inná sem varamaður en Davíð lét það ekki á sig fá. „Það var nóg eftir af leiknum þegar Lennon klikkaði og algjör óþarfi að svekkja sig eitthvað á því. Við héldum bara áfram að sækja á þá eins og við höfðum verið að gera í seinni hálfleik," sagði miðvallarleikmaðurinn. „Það hefur verið stígandi í okkar spilamennsku undanfarið og við höfum verið að koma okkur í betri stöðu í deildinni með því að ná okkur í stig í síðustu leikjum. Nú er bara að halda áfram að hala inn stig í deildinni og það er gríðarlega jákvætt að vera komnir í bikarúrslitaleikinn. Nú lítum við bara fram á við og stefnum á að klára tímabilið vel," segir hann um framhaldið. Davíð Snær er hér nýbúinn að ná í vítaspyrnu.
Mjólkurbikar karla Íslenski boltinn FH Fótbolti Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Fleiri fréttir Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Sjá meira