Erlent

Ekki útilokað að Lula sigri strax í fyrstu umferð

Kjartan Kjartansson skrifar
Handklæði með myndum af Lula da Silva (t.v.) og Jair Bolsonaro (t.h.) til sölu í Brasiliu, höfuðborg Brasilíu. Þeir eru einu frambjóðendurnir sem eiga möguleika á að komast í aðra umferð forsetakosninganna ef marka má kannanir.
Handklæði með myndum af Lula da Silva (t.v.) og Jair Bolsonaro (t.h.) til sölu í Brasiliu, höfuðborg Brasilíu. Þeir eru einu frambjóðendurnir sem eiga möguleika á að komast í aðra umferð forsetakosninganna ef marka má kannanir. AP/Eraldo Peres

Skoðanakönnun sem var birt fyrir síðustu sjónvarpskappræður frambjóðenda í forsetakosningunum í Brasilíu benda til þess að Luiz Inacio Lula da Silva, fyrrverandi forseti, gæti unnið endanlegan sigur strax í fyrstu umferð. Taugar eru þandar fyrir kosningarnar en Jair Bolsonaro forseti hefur ítrekað gefið í skyn að hann muni ekki viðurkenna úrslitin ef hann tapar.

Brasilíumenn ganga að kjörborðinu á sunnudag. Skoðanakannanir benda til þess að Bolsonaro þurfi að herða sig ætli hann sér að komast í aðra umferð gegn Lula. Forsetinn fyrrverandi hefur lengi mælst með mest fylgi frambjóðenda og virðist ekki útilokað að hann fái meirihluta atkvæða og ekki þurfi því að koma til annarrar umferðar.

Frambjóðendurnir tveir skutu fast hvor á annan í sjónvarpskappræðum með fimm öðrum sem fóru fram í gærkvöldi.

„Lygari. Fyrrverandi fangi. Svikari við þjóðina. Skammastu þín, Lula,“ hrópaði Bolsonaro á mótherja sinn. Vísaði hann þar til þess að Lula sat um tíma í fangelsi vegna umfangsmikils spillingarmáls tengdu ríkisolíufyrirtækinu Petrobras. Dómurinn yfir honum var síðar ógiltur og honum leyft að bjóða sig aftur fram til opinbers embættis.

„Það er sturlað að forseti komi hingað og segi það sem hann segir. Þess vegna mun fólkið senda þig heim 2. október,“ svaraði Lula svívirðingunum.

Sakar kjörstjórn um að vinna gegn sér

Bolsonaro hefur átt undir högg að sækja í kosningabaráttunni. Lágstéttarfólk finnur ekki fyrir efnahagsviðsnúningi eftir kórónuveirufaraldur sem hefur orðið um 700.000 Brasilíumönnum að bana til þessa.

Ítrekaðar fullyrðingar forsetans um að ekki sé hægt að treysta úrslitum kosninganna hafa ennfremur hrakið kjósendur frá honum í hrönnum, að sögn AP-fréttastofunnar. Bolsonaro hefur ekki lagt fram neinar sannanir máli sínu til stuðnings. Margir óttast því að hann neiti að viðurkenna úrslitin ef hann tapar og reyni að halda í völdin, mögulega með stuðningi hersins.

Bolsonaro sagði í viðtali fyrr í þessum mánuði að eitthvað „óeðlilegt“ væri í gangi með kjörstjórn ef hann ynni ekki fyrstu umferð kosninganna. Hann hefur gengið svo langt að saka hæstaréttardómara sem sitja í yfirkjörstjórn landsins um að vinna gegn sér.

Stuðningsmenn forsetans hafa gripið slík ummæli á lofti og haldið því fram að kosningunum verði hagrætt til að tryggja að Bolsonaro nái ekki endurkjöri. Þeir fullyrða jafnframt að skoðanakannanir vanmeti stuðning við róttæka hægristefnu forsetans.

Kjarni stuðningsmanna Bolsonaro eru evangelískir kristnir kjósendur sem eru um þriðjungur þjóðarinnar. Í kosningabaráttunni hefur Bolsonaro lýst sjálfum sér sem eina frambjóðandanum sem geti staðið vörð um kristna trú. Hann hefur meðal annars reynt að bendla Lula við trúarbrögð Brasilíumanna af afrískum uppruna til þess að koma höggi á hann á meðal kristinna kjósenda.


Tengdar fréttir

Brasilíumenn vilja úr gulu vegna Bolsonaro

Stuðningsmenn brasilíska landsliðsins eru margir hverjir hættir að klæðast frægri gulri treyju þessa sigursælasta landsliðs heims. Treyjan hafi verið gerð að pólitísku tákni öfgahægri afla í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×