Saka hvor aðra um njósnir og innbrot Ólafur Björn Sverrisson skrifar 7. október 2022 07:00 Þær hafa eldað grátt silfur um nokkurt skeið og ekkert lát virðist vera á þeirri eldamennsku samkvæmt nýjustu tíðindum af skrifstofu Eflingar. Núverandi formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir, segir ljóst að Agnieszka Ewa, fyrrverandi formaður stéttafélagsins hafi ætlað sér að njósna um sig með aðgangi að pósthólfi sínu. Agnieszka vísar því alfarið á bug og segir að sér hafi verið skylt samkvæmt lögum félagsins, að nálgast gögn í pósthólfi Sólveigar sem varða mikilvæg málefni félagsins. vísir/vilhelm Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sakar Agnieszku Ewu Ziólkowsku, fyrrverandi formann Eflingar um að stunda njósnir með aðgangi hennar að tölvupóstfangi Sólveigar hjá Eflingu. Agnieszka segir að hún hafi gefið Sólveigu frest, samkvæmt starfslokasamningi, til að fjarlægja persónuleg gögn úr tölvupósthólfi. Hún segir að sér hafi borið að nálgast gögn Sólveigar og Viðars til að halda starfsemi Eflingar áfram.
Kjarninn greindi fyrst frá málinu. Þar kom fram að þær Agnieszka og Ólöf Helga Adolfsdóttir, þá varaformaður Eflingar, hafi óskað eftir aðgangi að tölvupóstssamskiptum Sólveigar Önnu og Viðars Þorsteinssonar, þá fyrrverandi framkvæmdastjóra Eflingar. Eftir að hafa leitað álits Halldórs Oddsonar, lögfræðings ASÍ sem lagði blessun sína á aðgang Agnieszku, höfðu þær aðgang að tölvupósthólfi Sólveigar Önnu frá 12. janúar til 13. apríl 2022. Þær Agnieszku og Sólveigu greinir hins vegar á um lögmæti þess aðgangs. Þær hafa báðar látið vinna lögfræðiálit sínu máli til stuðnings. Í samtali við fréttastofu segist Sólveig Anna ekki hafa vitað af aðgangi þeirra Agnieszku Ewu og Ólafar Helgu. Það hafi komið henni á óvart þegar að Ólöf Helga hafi vitnað í tölvupóstssamskipti hennar og Drífu Snædal, fyrrverandi formann ASÍ, á stjórnarfundi 22. september síðastliðinn. „Ég og félagar mínir verðum heldur undrandi og ég fer eiginlega að hlæja og spyr nánar út í það hvernig hún viti af okkar tölvupóstssamskiptum. Ólöf svarar því að hún þurfi ekki að segja frá því. Svo heldur umræðan á fundinum áfram, mér finnst þetta undarlegt en ég hugsa ekkert meira um þetta.“ Fyrir viku segist Sólveig Anna hafa komist yfir prentaða tölvupósta á skrifstofu Agnieszku sem voru frá henni sjálfri á tvo starfsmenn Eflingar. Þau Sólveig Anna og Viðar misstu völdin í stéttafélaginu í um hálft ár í kjölfar uppsagnar Sólveigar, en hafa endurheimt þau völd. Í millitíðinni telja þau að brotið hafi verið á réttindum þeirra.vísir/vilhelm „Það tekur mig smá tíma að viðurkenna fyrir sjálfri mér hvað hljóti að hafa gerst. Að það sé engin önnur útskýring en sú að Agnieszka Ewa hafi með einhverjum hætti komist í gegnum tölvupósta mína. Þetta var á fimmtudaginn fyrir viku. Degi síðar kemst ég svo að því að þetta hafi hreinlega gerst og að þær hafi tengt tölvupósta okkar Viðars við þeirra aðgang,“ segir Sólveig Tvískinnungur að ásaka um njósnir en brjótast svo í skúffu Agnieszka Ewa segir hins vegar að sér hafi brugðið verulega þegar hún varð þess vör, af umfjöllun Kjarnans, að Sólveig Anna og hennar félagar hafi brotist í læsta skúffu á skrifstofu hennar. Hún hafi verið erlendis vegna dauðsfalls í fjölskyldunni. „Þetta er ákveðin hræsni að hún skuli saka mig um njósnir en viðurkennir svo sjálf að hafa brotist inn á skrifstofuna mína á meðan ég var ekki á landinu, og brotist inn í skúffu, sem ég var ein með lykil að, þar sem mínir persónulegu munir eru,“ segir Agnieszka Hún segir engan vafa á því að henni hafi verið heimilt að fá aðgang að pósthólfunum, henni hafi raunar borið skylda til þess sem staðgengill Sólveigar, samkvæmt lögum Eflingar. „Mörg mál hefðu endað ókláruð og dagað uppi í pósthólfi Sólveigar og þess vegna óskaði ég eftir aðgangi að pósthólfunum.“ Hún segist því hafa leitað bæði lögfræðiálits og persónuverndarálits áður aðgangur var veittur. „Sólveigu var veittur frestur til að veita okkur þau gögn sem okkur eru nauðsynleg til að halda ýmsum verkefnum áfram, sem og frest til að fjarlægja persónuleg gögn, sem hún nýtti sér,“ segir Agnieszka og bætir við að uppsagnarfrestur hennar hjá Eflingu klárist 31. október næstkomandi. Í aðsendri grein á Vísi, sem birtist í gær, lýsa formenn ellefu verkalýðsfélaga undir hatti Alþýðusambands Íslands áhyggjum af þeim stjórnarháttum Sólveigar Önnu og Ragnars Þórs. Sólveig Anna segir tvo höfunda hafa verið viðstödd fund ASÍ þar sem hún greindi frá meintum njósnum og segir þau greinilega ekkert hafa séð athugavert við háttsemi Agnieszku. Báðar í hart Sólveig Anna var endurkjörinn formaður 15. febrúar og tók við formennsku 8. apríl síðastliðinn. Hún telur það líklegast að þær Agnieszka og Ólöf Helga hafi með því að fá aðgang að pósthólfunum ætlað sér að „róta þar og finna einhvern skít.“ „Á þessum tíma hefur Ólöf Helga gefið kost á sér í stjórn. Ég gef kost á mér 25. janúar, þá láta þær sér samt ekki detta til hugar að nú sé komin stór og mikil ástæða til að hætta þessu en á þessu tímabili hafa þessar njósnir sennilega náð hámarki,“ segir Sólveig að lokum. Nú munu þær báðar, Agnieszka Ewa og Sólveig Anna, leita réttar síns vegna atvikanna. Sólveig Anna hyggst tilkynna atvikið til Persónuverndar. Hún segist hafa rætt málið á miðstjórnarfundi ASÍ þar sem hún taldi að aðrir formenn hreyfingarinnar þyrftu að vita af atvikinu og framgangi lögmanns ASÍ, Halldórs Oddsonar. Agnieszka Ewa hefur greint frá því hún muni leita réttar síns vegna þess hvernig Sólveig Anna hafi komist yfir útprentaða tölvupóstana.
Ólga innan Eflingar ASÍ Kjaramál Tengdar fréttir ASÍ hefur lengst af verið vettvangur átaka Sagnfræðingur segir ekki nýtt að átök séu um forystu og stefnu Alþýðusambandsins þótt tiltölulega friðsamt hafi verið innan samtakanna þar til nýverið. Formaður Verkalýðsfélagins Hlífar er vongóður um að sambandið nái vopnum sínum og samstaða náist um nýja forystu á komandi þingi ASÍ. 14. september 2022 12:09 Telja Ragnar Þór ekki geta valdið hlutverki forseta verkafólks Formenn ellefu verkalýðsfélaga undir hatti Alþýðusambands Íslands segja Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, ekki færan um að gegna hlutverki forseta ASÍ. Þau segja hann sækjast í völd og ætla að sitja með tvo hatta í komandi kjaraviðræðum. Þar sé skýr hagsmunaárekstur á ferðinni. 6. október 2022 14:39 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira
ASÍ hefur lengst af verið vettvangur átaka Sagnfræðingur segir ekki nýtt að átök séu um forystu og stefnu Alþýðusambandsins þótt tiltölulega friðsamt hafi verið innan samtakanna þar til nýverið. Formaður Verkalýðsfélagins Hlífar er vongóður um að sambandið nái vopnum sínum og samstaða náist um nýja forystu á komandi þingi ASÍ. 14. september 2022 12:09
Telja Ragnar Þór ekki geta valdið hlutverki forseta verkafólks Formenn ellefu verkalýðsfélaga undir hatti Alþýðusambands Íslands segja Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, ekki færan um að gegna hlutverki forseta ASÍ. Þau segja hann sækjast í völd og ætla að sitja með tvo hatta í komandi kjaraviðræðum. Þar sé skýr hagsmunaárekstur á ferðinni. 6. október 2022 14:39