Á Langholtsvegi í hjarta Laugardalsins stendur Sunnutorg sem er eitt helsta kennileiti hverfisins en þar var í áratugi starfrækt sjoppa. Árið 2017 auglýsti Reykjavíkurborg eftir hugmyndum um hvað skyldi taka við í húsinu en fimm árum síðar bólar ekki á neinu og húsnæðið heldur áfram að grotna niður.
Sigvaldur Thordarson arkitekt teiknaði húsið árið 1958 og var það byggt ári síðar en það var upphaflega hannað sem biðskýli og söluturn. Eftir hugmyndasöfnun árið 2017 stóð til að þar myndi rísa veitinga- og kaffihús.

Það gekk þó ekki eftir þar sem húsið var verr farið en upprunalega var talið. Reykjavíkurborg ákvað að efna aftur til hugmyndasamkeppni um lóðina 2019 en ári síðar skall heimsfaraldur á og því var verkefnið sett á bið.
Mikil umræða hefur skapast í gegnum tíðina meðal íbúa um húsnæðið en einn íbúi lagði fram tillögu til Reykjavíkurborgar á dögunum um að rífa húsið, enda hafi það staðið autt um árabil og væri gjörónýtt.

„Það er alveg ljóst að mikill meirihluti íbúa vill húsið í burtu sem slíkt. Það eru allir sammála um að nýta Sunnutorgið og jafnvel byggja eitthvað sambærilegt hérna, og ég er svo sem alveg sammála því. Við viljum bara að alla vega fyrsta skrefið sé tekið,“ segir Ingvar Garðarsson sem hefur lengi búið í hverfinu.
Þó nokkrir tóku undir tillögu Ingvars og færðu þau rök að húsið væri ekki aðeins subbulegt, heldur beinlínis hættulegt og það væri óskiljanlegt að það stæði enn. Aðrir vísuðu til þess að húsið væri friðað og því væri ekki hægt að rífa það. Frekar þyrfti að gera það upp.

„Þar liggur bara vandamálið. Þú ert með þá einhverja friðunarsinna sem að þykir vænt um húsið, og já, þetta er svo sem allt í lagi hús ef það væri í lagi, en síðan ertu með svona venjulegt fólk eins og hér sem vill bara losna við húsið út af því að þetta er lýti á hverfinu,“ segir Ingvar.
Í vikunni var skilti sem hefur staðið fyrir framan Sunnutorg í nokkur ár, um að þar myndi opna veitingastaður, fjarlægt.

Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg stendur enn til að leigja húsið út til veitingareksturs en verkefnið er í biðstöðu. Ætla má að framkvæmdir muni jafnvel taka nokkur ár og kostnaður hlaupa á tugum milljóna.
„Ef menn finna einhver not fyrir þetta, þá er það bara allt í lagi mín vegna en mér finnst það óttaleg sóun að fara að eiga að byggja hérna fyrir kannski hundrað eða tvö hundruð milljónir til að gera upp svona kofa. Mér finnst það bara galið,“ segir Ingvar.
Hvernig sérðu fyrir þér að framtíð þessa svæðis verði á næstu vikum, mánuðum og árum?
„Svona,“ segir Ingvar og hlær meðan hann bendir fyrir aftan sig. „Það er bara algjört aðgerðarleysi hjá borginni.“