Mörður eyddi athugasemd Karls um meint dáðleysi Kjartans Jakob Bjarnar skrifar 25. október 2022 14:37 Kristrún Frostadóttir er ein í framboði til formanns Samfylkingarinnar. Þó yfirborðið sé lygnt ólgar og kraumar undir niðri og víst að tekist verður á um eitt og annað á Landsfundi sem haldinn verður um helgina. vísir/vilhelm Þung undiralda er fyrir væntanlegan Landsfund Samfylkingarinnar sem haldinn verður um helgina. Ýmsar væringar innan flokks hafa leitað upp á yfirborðið í vikunni.
Víst er að tekist verður á um ýmis mál á Landsfundinum þó að á yfirborðinu sé lygnt. Kristrún Frostadóttir verður ein í framboði til formanns flokksins. Langt er síðan Logi Einarsson gaf það út að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri og þeir eru til sem telja það veikleikamerki að Kristrún, eftir til þess að gera skamman pólitískan feril, skuli ekki fá mótframboð; að áhugi á þeirri vegsemd sé ekki meiri. Á móti má benda á að innanbúðarvíg hafa leikið einhug innan stjórnmálaflokka grátt. Kjartan vill sitja áfram en við dræmar undirtektir Þá stefnir allt í að Guðmundur Árni Stefánsson, leiðtogi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hvar hann vann kosningasigur í síðustu sveitarstjórnarkosningum, verði sjálfkjörinn í embætti varaformanns. Þó flokkadrættir eða vísbendingar um átök sýni sig ekki í tengslum við kjör í æðstu stöður flokksins stefnir ekki í neina lognmollu. Greina má verulegt óþol á öðrum póstum. Kjartan Valgarðsson, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann boðaði það að hann gæfi áfram á sér kost í þá stöðu. Kjartan sendi frá sér sérstakan bækling til að styðja við framboð sitt og er það líkast til einsdæmi um framboð sem þetta. Ekki er hægt að segja að viðbrögð við tilkynningu Kjartans á Facebook séu mikil né að þau einkennist af húrrahrópum. En Mörður Árnason, fyrrverandi þingmaður Samfylkingar, deilir áfram tilkynningu Kjartans og lýsir yfir stuðningi við félaga Kjartan. Karl gefur minna en ekkert fyrir framboð Kjartans Karl Th. Birgisson blaðamaður, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, gefur hins vegar minna en ekkert fyrir það að Kjartan gefi kost á sér til áframhaldandi setu. Hann ritar harðorða athugasemd, svohljóðandi: Víst er að Kjartan Valgarðsson er ekki óumdeildur maður og hann fékk útreið á Facebook-síðu Marðar stuðningsmanns síns í athugasemd Karls Th. Birgissonar.Samfylkingin „Merkilegt. Þarna er ekki stakt orð um að Kjartan vill þrengja flokkinn frekar en opna hann. Heldur ekki að hann hrakti Karen Kjartansdóttur úr starfi framkvæmdastjóra. Enn síður að tekin var upp ritskoðun á vettvangi flokksins hér, sem er bæði hættuleg og hlægileg. „Þjálfun og fræðsla“ hljómar eins og það sem Lenín skrifaði fyrir hundrað árum, en er reyndar enn praktíserað í Kína. – Verst þó kannske, en kemur ekki endilega á óvart, að hvergi örlar á hálfri hugmynd um hvernig vinna megi kosningar. Hvað sem líður öllum símtölum og tölvubréfum frá flokknum til félagsmanna. Það gerist ekki með útgáfu sænskra handbóka.“ Þegar menn vildu rifja upp þennan snarpa pistil í morgun var hann hins vegar horfinn. Mörður hefur eytt athugasemdinni og ritar: „Til upplýsingar að gefnu tilefni: Á mínum þræði ríkir umburðarlyndi og veruleg þolinmæði, einkum gagnvart umræðu um sjálfan mig. Þeir sem hinsvegar hafa þörf fyrir að ganga örna sinna með ritrænum hætti eru beðnir að snúa sér annað.“ Mörður var afar ósáttur við athugasemd síns gamla samherja og framkvæmdastjóra flokksins, Karls Th. Birgissonar, svo mjög að hann eyddi henni og Karl fékk jafnframt að fjúka af vinalista Marðar.siðmennt Svo mjög rann Merði í skap við þessi orð Karls, samherja síns til margra ára, að hann lét Karl jafnframt fjúka af vinalista sínum á Facebook. Flosi íhugar framboð Af þessu má ráða að Kjartan óttast mótframboð og hann hefur líklega ástæðu til þess. Samkvæmt heimildum Vísis er Flosi Eiríksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, að íhuga að bjóða sig fram í þessa stöðu en ýmsir valdamenn innan flokksins hafa skorað á hann að gera það. Flosi Eiríksson var meðal fjölmargra viðstaddra þegar Kristrún Frostadóttir tilkynnti að hún gæfi kost á sér í formannskjöri Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins þann 28. október næstkomandi. Hann er hér ásamt Pétri Hrafni Siguðssyni Samfylkingarmanni úr Kópavogi og Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur fyrrverandi þingmanni flokksins.vísir/vilhelm Þá stefnir í hasar um tillögu fyrrverandi þingmanna flokksins, þeirra Kristjáns L. Möller og áðurnefnds Marðar. Þeir hyggjast leggja fram tillögu um að Samfylkingin breyti um nafn, að orðið Jafnaðarflokkurinn komi í stað orðsins Samfylkingin eða orðanna Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem tillaga á borð við þessa kemur fram. Jóhanna Sigurðardóttir þá formaður Samfylkingarinnar og Margrét S. Björnsdóttir, þá formaður framkvæmdastjórnar flokksins, vildu 2013 breyta nafni Samfylkingarinnar í Samfylkingin – Jafnaðarmannaflokkur Íslands. Þeir Kristján og Mörður segja nafnið barn síns tíma og hafi í raun verið vinnuheiti þegar kosningabandalagið varð til. Meint náttúrulaust og merkingarlaust heiti Þessi hugmynd hefur hins vegar víða fallið í grýtta jörð. Í tilkynningu frá Ungu jafnaðarfólki segir að hreyfingin hafni umræðu síðustu vikna um að nauðsynlegt sé að breyta um nafn Samfylkingarinnar en lýsi þó yfir stuðningi við að sett verði í lög flokksins að merki hans skuli vera rós. Þá ritar Jón Gunnar Ottósson, eiginmaður Margrétar Frímannsdóttur og fyrsta formanns Samfylkingarinnar, pistil á Facebook þar sem hann telur þetta afleita hugmynd. Hann skilur ekki þann vilja sem hann les í tillöguna: „Þrengja markmiðin með því að kalla flokkinn Jafnaðarflokk Íslands, sleppa orðinu Samfylking, eins og sumir vilja; búa til nýtt náttúrulaust og merkingarlaust heiti.“ Meðal þeirra sem gefa merki um að vera sammála Jóni Gunnari eru áhrifamenn innan Samfylkingarinnar; þeir Stefán Jón Hafstein og Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi ráðherra. Kratarós og embætti ritara Ónefnt er þá það sem liggur fyrir sem er að Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri á Ísafirði, mun bjóða sig fram í ritaraembætti flokksins. En sitjandi ritari, Alexandra Ýr van Erven, er ritari og hefur verið síðan 2020. Alexandra Ýr hefur gefið það út að hún vilji vera áfram þannig að þar verður kosið. Annað sem nefna má til dæmis um nokkuð sem gæti valdið ólgu á komandi Landsfundi eru svo áform um að taka upp nýtt merki fyrir flokkinn. Hugmyndin er sú að rósin, sem er alþjóðlegt merki jafnaðarmanna, verði í aðahlutverki í nýju merki. Fyrir liggur hugmynd að uppfæra merki Samfylkingarinnar og að þar verði rósin, alþjóðlegt merki jafnaðarmanna, í aðalhlutverki. En óvíst er að friður verði um þá hugmynd. Samkvæmt heimildum Vísis hefur enginn ágreiningur risið vegna þessa innan flokksins og er Kristrún Frostadóttir væntanlegur formaður sögð fylgjandi hugmyndinni. Hins vegar er ekki óvarlegt að ætla að einhverjir sem í Samfylkingu eru og komu í hana úr Alþýðubandalaginu eða Kvennalista þyki sem þarna sé verið að halla sér um of að gamla Alþýðuflokknum, sem einmitt var með rós í sínu merki; svonefnd kratarós. Nóg sé nú samt með tillögu um breytingu á nafni flokksins.
Samfylkingin Fréttaskýringar Samfélagsmiðlar Mest lesið Tíu ára stúlku vísað úr strætó Innlent Banninu verður ekki flýtt Bílar Kolólöglegt og hættulegt brúnkulyf í tísku á samfélagsmiðlum Innlent Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Innlent Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning Innlent Hjólhýsi brann í Húsafelli Innlent Hugsi yfir lausagöngu fjár við vegi eftir að ferðamaður ók á lamb Innlent Séra Aldís Rut tekur við af verðandi biskup Innlent Kristján Loftsson skilur ekkert hvað hvalveiðar koma alls kyns samtökum við Innlent Stútar á rafhlaupahjólum handteknir og mega búast við sektum Innlent Fleiri fréttir Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum 82 ára snillingur í Hafnarfirði í hannyrðum „Hann á að vera hér á Íslandi“ Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Alvarlegar aukaverkanir af brúnkunefspreyjum og brottvísun Yazans Tamimi Rændi fötum fyrir nánast hundrað þúsund Hugsi yfir lausagöngu fjár við vegi eftir að ferðamaður ók á lamb Séra Aldís Rut tekur við af verðandi biskup Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning Rabarabarahátíð í gamla bænum á Blönduósi Býst ekki við nýju eldgosi Hyggst ekki flýta bílabanni og efasemdir um nýtt eldgos Stútar á rafhlaupahjólum handteknir og mega búast við sektum Hjólhýsi brann í Húsafelli Boða til samstöðufundar með Yazan Tíu ára stúlku vísað úr strætó Kristján Loftsson skilur ekkert hvað hvalveiðar koma alls kyns samtökum við Séra Sigfús Jón Árnason látinn Kolólöglegt og hættulegt brúnkulyf í tísku á samfélagsmiðlum Verðlagning landsbyggðarstrætó „glórulaus“ Landsvirkjun með hundraðasta frisbígolfvöll landsins Stórir viðburðir í hættu þegar miðbærinn stækkar „Maður þurfti að vakta að hann myndi ekki kveikja í okkur“ Reykspúandi flugsveit veltir sér yfir Akureyri Hélt fyrst að innbrotsþjófurinn væri sölumaður „Hótanir eru að færast nær fjölskyldum og heimilum“ Birta viðkvæmar upplýsingar um lögreglumenn á netinu „Stökk upp í rúm og sparkaði ítrekað í höfuðið á honum“ Fá svæði á líkama þar sem voru engir áverkar Flug frá Keflavík til Köben taki styttri tíma en meðaltími nauðgunar Sjá meira