Ómar Ingi og Gísli Þorgeir í aðalhlutverkum hjá Magdeburg Smári Jökull Jónsson skrifar 16. nóvember 2022 19:20 Ómar Ingi Magnússon átti enn og aftur góðan leik fyrir Magdeburg. Vísir/Getty Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru í stórum hlutverkum hjá Magdeburg sem lagði Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Magdeburg lyfti sér upp í fjórða sætið með sigrinum.
Fyrir leikinn var Magdeburg í fimmta sæti deildarinnar en hafði leikið þremur leikjum færra en flest önnur lið þar sem liðið tók þátt í heimsmeistarakeppni félagsliða fyrr í haust. Stuttgart var í ellefta sætinu, með átta stig eftir ellefu leiki. Jafnt var á öllum tölum til að byrja með en í stöðunni 8-7 fyrir Stuttgart skoraði Magdeburg fimm mörk í röð og komst í 12-8. Staðan í hálfleik var 15-12 fyrir gestina frá Magdeburg. Í síðari hálfleik hélst munurinn lengst af í tveimur til fjórum mörkum en þegar rúmar tíu mínútur voru eftir minnkaði Stuttgart muninn í 26-25. Þá náði Magdeburg hins vegar 4-1 kafla og sigldi sigrinum í höfn. Lokatölur 32-28 og Magdeburg þar með komið upp í fjórða sæti deildarinnar. Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk úr sex skotum fyrir Magdeburg og gaf fimm stoðsendingar þar að auki. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú mörk og gaf sjö stoðsendingar. Magdeburg er eins og áður segir í fjórða sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Fusche Berlin en á tvo leiki til góða.
Handbolti Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira