Erlent

Reka mexíkóska sendiherrann úr landi fyrir afskipti

Kjartan Kjartansson skrifar
Pedro Castillo knúsar kellu sína, Liliu Paredes Navarro, á fundi með stuðningsmönnum hans fyrir forsetakosningar sem fóru fram í fyrra.
Pedro Castillo knúsar kellu sína, Liliu Paredes Navarro, á fundi með stuðningsmönnum hans fyrir forsetakosningar sem fóru fram í fyrra. AP/Guadalupe Pardo

Stjórnvöld í Perú hafa gert mexíkóska sendiherranum að yfirgefa landið innan þriggja sólarhringa eftir að Mexíkó veitti fjölskyldu Pedro Castillo, fyrrverandi forseta, hæli. Castillo er sakaður um að hafa reynt að hefja uppreisn.

Fjölskylda Castillo leitaði á náðir mexíkóska sendiráðsins í Lima eftir að Castillo var handtekinn fyrr í þessum mánuði. Castillo ætlaði að leysa upp þingið þegar það hugðist kæra hann fyrir embættisbrot. Áður en hann náði að gera það fjarlægði þingheimur hann úr embætti.

Marcelo Ebrard, utanríkisráðherra Mexíkó, sagði í gær að unnið væri að því að tryggja Castillo-fjölskyldunni öryggisleið út úr landinu. Ana Cecilia Gervasi, perúsk starfssystir hans, sagði að leyfi til þess hefði þegar verið veitt.

Breska ríkisútvarpið BBC segir að ákvörðun mexíkóskra stjórnvalda um að veita fjölskyldunni hæli í gær hafi reitt perúska ráðamenn til reiði. Þau hafi nú lýst Pablo Monroy, mexíkóska sendiherrann óvelkominn. Hann fékk 72 klukkustundir til þess að hafa sig á brott.

Perúska utanríkisráðuneytið vísar til ítrekaðra yfirlýsinga æðstu ráðamanna í Mexíkó um stjórnmálaástandið í Perú. Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexíkó, hefur lýst stuðningi við Castillo og sagt að það hafi verið ólýðræðislegt að víkja honum úr embætti. Þetta telja perúsk stjórnvöld afskipti af innri málefnum landsins.

Ráðuneytið segir að Lilia Paredes Navarro, eiginkona Castillo, sé einnig til sakamálarannsóknar án þess að fara nánar út í þá sálma, að sögn AP-fréttastofunnar.

Neyðarlög gilda nú í Perú vegna ofbeldisfullra mótmæla sem brutust út eftir að Castillo var bolað úr forsetastóli. Mótmælendur hafa meðal annars krafist þess að kosið verði tafarlaust og að Castillo verði sleppt úr haldi.

Þingið samþykkti áætlun um að flýta kosningum um tvö ár. Aukinn meirihluti þess þarf að samþykkja tillöguna á næsta þingi til þess að hún öðlist gildi. Kosningar færu þá fram í apríl 2024.


Tengdar fréttir

Lýsa yfir neyðarlögum vegna mótmælanna í Perú

Ný ríkisstjórn Perú lýsti í dag yfir neyðarlögum vegna ofbeldisfullra mótmæla sem brutust út eftir að Pedro Castillo forseti var vikið úr embætti í síðustu viku. Lögregla fær auknar valdheimildir með lögunum og samkomufrelsi er afnumið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×