Martínez sagði Ten Hag að kaupa sig til að losna við Arsenal Valur Páll Eiríksson skrifar 21. desember 2022 17:45 Martínez vildi frekar fara til United en Arsenal. Ash Donelon/Manchester United via Getty Images Nýkrýndi heimsmeistarinn Lisandro Martínez var með tilboð frá Arsenal á borðinu síðasta sumar en vildi frekar endurnýja kynnin við Erik ten Hag, stjóra Manchester United.
Martínez var varnarmaður Ajax í Hollandi frá 2019 þar til í sumar og lék þar undir stjórn Erik ten Hag, sem tók við Manchester United í sumar. Ten Hag greinir frá því í viðtali við hollenska fjölmiðla að Martínez hafi verið ákveðinn í að yfirgefa Ajax en Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, lagði mikla áherslu á að semja við kappann. Hann vildi frekar leika fyrir ten Hag í Manchester. „Ef við hefðum ekki tekið hann hefði hann farið til Arsenal. Hann var í forgangi þar. Licha (Lisandro Martínez) hringdi í mig á einum tímapunkti: „Þjálfari, ég er að fara frá Ajax hvort sem er, en ef þú vilt mig fer ég til Manchester United“,“ segir ten Hag. „Þá hugsaði ég að ég gæti ekki skotið mig í fótinn. Hann hefði aldrei verið áfram í Amsterdam, það var ljóst. Við slógum til og gengum frá samningum,“ segir hann enn fremur. Manchester United snýr aftur úr HM-pásu í kvöld þegar liðið mætir Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley í enska deildabikarnum. Liðið situr í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 26 stig, þremur frá Meistaradeildarsæti. Nottingham Forest er næsti andstæðingur liðsins í deildinni, þann 27. desember.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira