Hálka, grýlukerti og snjóhengjur Sigurður Helgi Guðjónsson skrifar 13. janúar 2023 13:00 Bótaábyrgð húseiganda Þegar vetrarslys, föll og snjó og íshrun, verða við hús er spurt um ábyrgð eigenda þeirra. Það er engin almenn skráð lagaregla um ábyrgð húseigenda vegna slíkra slysa.. Hins vegar á ábyrgur húseigandi að vera vakandi gagnvart veðrabrigðum og slysagildrum. Þegar hann má gera sér grein fyrir hættu og það kostar hvorki mikið fé né fyrirhöfn að gera fyrirbyggjandi ráðstafanir, hvílir á honum skylda til að bregðast við að viðlagðri bótaábyrgð. Bótabyrgð húseigenda byggist á ólögfestum meginreglum og dómafordæmum . Það er skilyrði bótaskyldu að um ásetning, gáleysi eða vanrækslu, húseiganda sé að tefla. Sá sem krefur um bætur verður að sanna skilyrði bóta og fjárhæð tjóns. Bonus Pater Vanræksla og gáleysi er metið út frá þeirri fyrirhyggju og varkárni sem góður fjölskyldu-faðir telur rétt að sýna við sömu aðstæður. Hvað hefði hann gert í stöðunni? Hefði hann mokað, eytt hálku, brotið niður grýlukerti og rutt snjóhengjum af þaki? Ef hann hefði gert það en þú lást makindalega upp í sófa meðan fólk var á fallandi fæti fyrir utan og grýlukertin kollsteyptust, þá ert þú í vondum málum og bótaábyrgur. Ekki eru allar föll til fjár né byltur til bóta Það er meginregla að fólk fari sinna ferða á eigin áhættu og að slys og tjón séu á þess ábyrgð. Það eru almennt líkur á því að slys séu vegna óhappatilviljunar og engum sé um að kenna nema þá manni sjálfum. Það heyrir til undantekninga að aðrir beri ábyrgð á slysum og tjóni fólks. Þótt vanræksla húseigenda sé sönnuð og bótaskylda sé fyrir hendi þá kunna bætur að falla niður að öllu leyti eða hluta vegna eigin sakar hins slasaða. Menn eiga að kunna fótum sínum forráð og að hegða sér eftir aðstæðum. Menn mega vita að hér er allra veðra von og veðrabrigði eru skjót og menn verða að haga leiðarvali, fótabúnaði og hraða í samræmi við það. Dæmi eru um að háir hælar og hlaup á svelli hafi valdið því að bætur runnu úr greipum. Atvinnuhúsnæði Dómstólar gera strangari kröfur um aðgát, ráðstafanir og slysavarnir, til eigenda bygginga sem hýsa stofnanir, verslanir og þjónustustarfsemi, þangað sem almenningur á erindi eða er beinlínis hvattur til að sækja. Minna þarf til að eigendur slíkra húsa veði ábyrgir vegna vetrarslysa en húseigendur almennt. Fáir dómar. Yfirleitt sýkna Tiltölulega fáir Hæstaréttardómar hafa gengið um ábyrgð húseigenda í málum af þessum toga. Þeir eru eitthvað á annan tug en málum hefur farið fjölgandi síðustu árin og áratugina. Sjaldnast hefur bótaábyrgð verið lögð á húseigendur og er sýkna meginreglan. Þessi mál eru tiltölulega ný bóla. Hvað skyldi valda því? Aðstæður hafa lítið breyst nema þá til bóta, t.d hitalagnir í stéttum og plönum. Veðurfar er svipað og hálka, grýlukerti og snjóhengjur eru ekki ný af nálinni. Kannski er nútímamaðurinn hættur að rýna í veðrið og merki náttúrunnar og orðinn andvaralaus, ógætinn og klaufskur innipúki. Mannbroddar Notkun mannbrodda var til skamms tíma á undanhaldi og sleipt skótau á stóra sök á byltum og föllum. Síðustu árin hefur orðið mannbroddavakning. Áður fengust þeir hjá 2 eða 3 skósmiðum og úrvalið var fábreytt en nú fást broddar í annarri hverri búð og úrvalið er mikið og gott. Samt er fólk á fallandi fæti út um allt. Það má vera að fólk ætli sér skemmri tíma til að fara á milli staða og sé um og fari hraðar en aðstæður leyfa og gleymi broddunum í hlaupum og asa dagsins Bótafíkn Sennilega hefur fyrri tíðar fólk frekar horft í eigin barm ef því varð hált á svelli og tekið því sem óhappi eða kennt sér sjálfu um. Nú virðist fólki tamara að kenna öðrum um og finna sökudólga þegar illa fer og óhöpp verða. Aldahátturinn hefur breyst og má ef til vill kenna það amerískum sjónvarpsþáttum og bíómyndum um stjörnu- eða ofurlögfræðinga sem lögsækja allt sem hreyfist út af hverju sem er.. Hálkugöngulagið Þá kann að vera að þjóðin hafi glatað hálkugöngulaginu sem gerði henni forðum fært að svífa hratt og örugglega yfir ísilagða slóð. Þjóðin er orðin veikari á svellinu og kann ekki fótum sínum eins góð forráð og fyrrum. Inúítar og Samar hafa varðveitt þessa göngulist og geta þotið yfir hálan ís án nokkurs broddabúnaðar og eru það fótvissir að þeir detta bara aldrei. Þeir dansa, ganga eða hreinlega svífa yfir svell og ís, mjúklega og gleiðir og með hnén laus og mjaðmirnar líka og galdra þyngdarpunktinn langt niður. Þeir taka lítil skref og auka jafnvægið með því að hafa hendurnar út með síðunum, svona líkt og mörgæsir. Líkaminn er afslappaður og hreyfingar kattmjúkar. Andstaða við stífa og stirðbusalega hreyfingar fullorðins fólks hér í hálkunni. Mörg börn kunna hins vegar þetta hálkugöngulag ómeðvitað og detta sjaldan. Að vera gleiður á svellinu er gamalt orðtak og merkir að vera montinn eða góður með sig. Það er í fullu gildi enda mega þeir bera sig borginmannlega og hrósa happi sem komast sinna ferða uppréttir og óbrotnir. Brynja heitin Benediktsdóttir leikstjóri var velkunnug á Grænlandi. Hún var með þetta göngulag á hreinu og við bárum saman bækur okkar um hálkugöngulagið og komust að því að Samar og Inúítar eru með þetta og alveg svellkaldir. Það væri mikið heillaráð hefja hálkugöngulistina til vegs og virðingar og fá Sama og Inúíta til að koma okkur á sporið. Hálkugöngulagið er mikið þarfaþing og öryggisatriði og ómetanleg slysavörn. Hins vegar verður að viðurkennast að það er ekki mjög sexý í praxis, eiginlega bara alls ekki neitt. Þokkagyðjur og sjarmatröll ganga víst á annan veg. En almennt hlýtur að vera betra með limina heila og í lagi en að vera rúmliggjandi með lemstraðan og margbrotinn skrokk og kynþokka. Já ég er af samísku bergi. Amma mín var Sami innprentaði mér ýmsa samíska visku og siði, þ.á.m. hálkugöngulagið. Annars var þetta göngulag líka almennt viðhaft hér á landi hér fyrr á árum og öldum. Þjóðin hefur því miður gleymt því eða fjarlægst það vegna tísku og tíðarandans. Varkárni og varúðarráðstafanir Það er rík ástæða til að hvetja húseigendur til að sýna aðgæslu og gera viðeigandi ráðstafanir þegar Vetur konungur lætur til skarar skríða. Þeir verða að vera vökulir gagnvart veðrabrigðum og hættumerkjum, moka gangstéttir og tröppur, strá sandi eða salti á svell og hálkubletti og hafa vakandi auga með grýlukertum og snjóhengjum á þökum og gera ráðstafanir til slysavarna. Sömuleiðis er ástæða til að hvetja gangandi vegfarendur til að sýna varúð í vetrarfærð og vanda fótabúnað, nota brodda og flýta sér hægt. Eins ættu vegfarendur að bera höfuðið hátt og skima eftir viðsjárverðum grýlukertum og snjóhengjum. Höfundur er formaður Húseigendafélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Slysavarnir Málefni fjölbýlishúsa Sigurður Helgi Guðjónsson Mest lesið „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun