Simeone hetja Napoli gegn lærisveinum Mourinho Arnar Geir Halldórsson skrifar 29. janúar 2023 21:47 Úr leiknum í kvöld. vísir/Getty Napoli vann sinn fjórða leik í röð í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar liðið fékk Rómverja í heimsókn í kvöld. Markahrókurinn Victor Osimhen náði forystunni fyrir heimamenn með stórkostlegu marki snemma leiks og leit lengi vel út fyrir þægilegan sigur heimamanna. Stephan El Sharaawy kom inn af varamannabekk AS Roma í síðari hálfleik og hann náði að jafna metin fyrir gestina þegar stundarfjórðungur lifði leiks. Annar varamaður, Giovanni Simeone, reyndist hetja heimamanna þegar hann skoraði sigurmark á 86.mínútu. Fékk Argentínumaðurinn góðan tíma til að athafna sig í vítateit Rómverja og nýtti sér það til fullnustu. Ítalski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn