Guðný og Sara spiluðu báðar þegar Milan vann Juventus Smári Jökull Jónsson skrifar 4. febrúar 2023 15:27 Sara kom inn sem varamaður hjá Juventus í dag. AC Milan vann góðan sigur á Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Guðný Árnadóttir lék allan leikinn í vörn Milan sem vann 2-1 sigur en Sara Björk Gunnarsdóttir kom inn af bekknum hjá Juventus.
Fyrir leikinn í dag var Juventus að elta Roma í toppbaráttu deildarinnar en Roma vann 1-0 sigur á Como í morgun og jók þá forystu sína á toppnum í átta stig. Það var því mikilvægur leikur Juventus og AC Milan ef Juventus ætlaði ekki að missa Roma of langt fram úr sér. Guðný Árnadóttir byrjaði leikinn í hægri bakvarðarstöðunni hjá Milan en Sara Björk Gunnarsdóttir var á varamannabekk Juventus. Staðan var markalaus lengst af í fyrri hálfleik en undir lok hálfleiksins fékk AC Milan hins vegar vítaspyrnu og Lisa Boattin, varnarmaður Juventus, var rekin af leikvelli. Martina Piemonte skoraði úr vítaspyrnunni og staðan orðin erfið hjá Juventus. Í síðari hálfleik bætti Milan síðan við. Lindsey Thomas skoraði á 75.mínútu og mínútu síðar kom Sara Björk inn af bekknum hjá Juventus. Hún náði sér í gult spjald fimm mínútum síðar en náði ekki að setja mark sitt á leikinn að öðru leyti. Juventus tókst á klóra í bakkinn alveg undir lokin þegar hin sænska Linda Sembrant skoraði eftir sendingu Arianna Caruso. Lokatölur í leiknum 2-1 fyrir Milan sem situr í 5.sæti deildarinnar. Juventus er áfram í öðru sætinu, átta stigum á eftir Roma en jafnt Fiorentina í þriðja sæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Fleiri fréttir „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Sjá meira