Giroud kom AC Milan aftur á beinu brautina

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. Emilio Andreoli/Getty Images

Eftir fjögur skelfileg töp í röð tókst AC Milan loks að vinna knattspyrnuleik. Franski framherjinn Oliver Giroud sá til þess.

AC Milan hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. Liðið steinlá gegn nágrönnum sínum í Inter í Ofurbikarnum. Í kjölfarið tapaði liðið stórt gegn Lazio og Sassuolo í deildinni áður en Inter vann deildarleik liðanna.

Það var því ekki víst við hverju mátti búast þegar Torino heimsótti San Siro í Mílanóborg í kvöld. Það verður seint talað um einhverja flugeldasýningu en á endanum var eitt mark skorað.

Það gerði Oliver Giroud þegar hann afgreiddi fyrirgjöf samlanda síns Theo Hernandez snyrtilega í netið á 62. mínútu leiksins.

Lokatölur 1-0 og AC Milan komið upp í 3. sæti með 41 stig. Einu meira en Roma, tveimur meira en Lazio og þremur meira en Atalanta. Öll þrjú lið eiga þó leik til góða á AC Milan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira