Ekki hefur náðst í Guðmund Inga Guðbrandsson vinnumarkaðsráðherra í dag. Hann tilkynnti hins vegar í gær að sérstakur ríkissáttasemjari yrði skipaður í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsinis.
Nú í hádeginu er sólarhringur þar til umfangsmeiri verkfallsaðgerðir Eflingar hefjast á sjö fyrrverandi Icelandair hótelum ásamt Edition hótelinu og hjá bílstjórum olíufélaganna og Samskipa. Talsmenn olíufélaganna hafa sagt að fljótlega muni bera á eldsneytisskorti. Það muni aðeins taka um tvo til þrjá daga að tæma eldsneytistanka bensínstöðvanna.
Þá er ljóst að umfangsmeiri verkföll muni hafa mun meiri áhrif á ferðaþjónustuna og daglegt líf fólks en þau verkföll sem hófust fyrir viku. Á fimmtudag hefst síðan atkvæðagreiðsla hjá Eflingu um vinnustöðvun sem mun ná til allra starfsmanna á veitinga- og gistihúsum, hjá öryggisgæslufyrirtækjum og ræstingarfyrirtækjum.
Þeirri atkvæðagreiðslu lýkur á mánudag. Verkfall hæfist hinn 28. febrúar verði tillögur um verkföll samþykktar.
Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir liggja mikið á að nýr sáttasemjari verði skipaður.
„Og ég vænti þess að nýr ríkissáttasemjari í þessari deilu verði skipaður öðru hvoru meginn við hádegið. Ef ég er spurður álits,” segir Halldór Benjamín
Staðan sem upp væri komin væri ekki bara fordæmalaus heldur hljóti hún að vera þeim sem settu lög í landinu og færu með framkvæmdavaldið mikið umhugsunarefni. Tjón samfélagsins vegna verkfallsaðgerða Eflingar væri nú þegar orðið umtalsvert.
„Næstu daga mun samfélagið finna fyrir áhrifum verkfalla með áþreifanlegum hætti. Ég spái því að öðru hvoru meginn við helgina muni daglegt líf okkar flestra lamast. Stjórnmálin geta ekki verið á hliðarlínunni þegar sú staða er komin upp,“ segir framkvæmdastjóri SA.
Nú er kjördæmavika á Alþingi og þingmenn og ráðherrar því um allar tær og trissur. Ekki hefur náðst í vinnumarkaðsráðherra í morgun sem samkæmt heimildum er staddur einhvers staðar á Vesturlandi.
Halldór Benjamín segir að samninganefndir deiluaðila verði að funda umsvifalaust eftir að nýr sáttasemjari hafi verið skipaður til að reyna að finna lausnir. Það væri erfitt á meðan Efling gerði allt til að koma í veg fyrir að almennir félagsmenn fengju að láta skoðun sína á miðlunartillögunni í ljós.
Það fer varla að vera fyrsta verk nýs ríkissáttasemjara að endurtaka miðlunartillöguna?
„Miðlunartillagan er gild. Það er ekki búið að draga hana til baka. Á meðan svo er ber aðilum að taka afstöðu til miðlunartillögunnar.”
Ertu kannski líka að gefa ti kynna að það þyrfti að setja lög á þetta verkfall?
„Ég útiloka ekkert í þessari kjaradeilu. Ég held og fullyrði reyndar við þig, að það verði miklar vendingar á þessari leið næstu daga.”
Hvers konar?
„Við skulum bara sjá hverju fram vindur,“ sagði Halldór Benjamín.
Nú í hádeginu hófst stjórnarfundur hjá Samtökum atvinnulífsins. Halldór Benjamín hefur áður ekki útilokað að samtökin muni setja verkbann á félaga Eflingar sem ekki væru í verkfalli. Það er ef til vill eitt af því sem rætt verður á stjórnarfundinum.
Samkvæmt tilkynningu frá Eflingu hafa fjölmargar undanþágubeiðnir borist félaginu nú þegar vegna aksturs bílstjóra og dreifingar á eldsneyti. Undanþágunefnd kemur saman til fyrsta fundar klukkan fjögur í dag. Búast má við fyrstu úrskurðum nefndarinnar seinni partinn í dag eða kvöld.
Í tilkynningu Eflingar segir að félagið hefði þegar átt óformleg samtöl við fulltrúa lögreglu, slökkviliðs og Vegagerðar og bendi allt til góðs samstarfs við þessa aðila um veitingu og framkvæmd undanþága.
Undanþágunefnd er skipuð fulltrúum úr samninganefnd félagsins og er formaður hennar Sólveig Anna Jónsdóttir.