Messías kom AC Milan til bjargar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Bjargvættur Mílanó-liðsins.
Bjargvættur Mílanó-liðsins. Giuseppe Cottini/Getty Images

AC Milan vann 1-0 útisigur á Monza í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í dag.

AC Milan er hægt og rólega að rétta úr kútnum eftir skelfilegt gengi að undanförnu. Liðið vann 1-0 sigur á Tottenham Hotspur í Meistaradeild Evrópu á dögunum og endurtók leikinn gegn Monza í dag.

Eina mark dagsins skoraði Brasilíumaðurinn Junior Messías á 31. mínútu leiksins.

Með sigrinum þá jafnar AC Milan nágranna sína í Inter að stigum en liðin eru í 2. og 3. sæti með 44 stig hvort. Inter á þó leik til góða. Napoli er hins vegar á toppi deildarinnar með 62 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira