Fótbolti

Albert á skotskónum í sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson. Getty/Simone Arveda

Albert Guðmundsson var á skotskónum þegar lið hans, Genoa, vann 3-0 sigur á SPAL í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag. 

Albert var í byrjunarliði Genoa í fremstu víglínu en staðan í leiknum var markalaus allt þar til á 70.mínútu þegar Radu Dragusin kom Genoa yfir.

Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma tvöfaldaði Albert forystuna fyrir Genoa og fimm mínútum síðar gulltryggði Eddie Salcedo 3-0 sigur heimamanna.

Genoa er í öðru sæti deildarinnar, níu stigum á eftir toppliði Frosinone.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×