Arnar Þór tók af skarið og hringdi í Albert Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2023 08:00 Albert Guðmundsson gæti snúið aftur í íslenska landsliðið. vísir/hulda margrét Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur sett sig í samband við Albert Guðmundsson. Það gæti því séð fyrir endann á deilu þeirra.
Arnar hætti að velja Albert í landsliðið síðasta haust og gagnrýndi leikmanninn fyrir hugarfar hans í verkefnum með landsliðum. „Fyrir mér er það þannig að það að vera í íslenska landsliðinu er mikill heiður og það kallar á hundrað prósent hugarfar, alla daga og alltaf. Þú ert annað hvort hundrað prósent með okkur í þessu eða ekki,“ sagði Arnar á blaðamannafundi og bætti við að hann væri ekki tilbúinn að velja Albert aftur í landsliðið fyrr en hann væri tilbúinn að vera hluti af liðsheild íslenska liðsins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins tók Arnar upp símann á dögunum og hringdi í Albert sem hefur spilað vel fyrir Genoa í ítölsku B-deildinni að undanförnu. Það gæti því farið svo að Albert verði í landsliðshópnum fyrir leikina gegn Bosníu og Liechtenstein sem verður kynntur á morgun. Í vetur hefur Albert skorað níu mörk og lagt upp fjögur í 29 leikjum fyrir Genoa í deild og bikar. Albert hefur leikið 33 landsleiki og skorað sex mörk.
EM 2024 í Þýskalandi Landslið karla í fótbolta Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Fleiri fréttir „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Sjá meira