Miðvörður Víkinga mögulega með slitið krossband Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. mars 2023 22:01 Kyle Mc Lagan í Evrópuleik síðasta sumar. Vísir/Hulda Margrét Kyle Douglas Mc Lagan, miðvörður bikarmeistara Víkings, fór meiddur af velli þegar Víkingur tapaði 1-0 fyrir Val í undanúrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu. Óttast er að hann sé með slitið krossband í hné. Mc Lagan hóf leikinn í hjarta varnarinnar ásamt Oliver Ekroth. Á 65. mínútu þurfti Mc Lagan að fara meiddur af velli. Fékk hann aðstoð við að komast inn í hús. Eftir leik mætti Arnar Gunnlaugsson, þjálfari, í viðtal á Fótbolti.net. Þar sagðist hann óttast það versta. „Mestu áhyggjurnar núna eru varðandi Kyle, erum að bíða og vona að hann sé ekki með slitið krossband. Þetta leit ekki vel út, það návígi sem hann fór í,“ sagði Arnar en Víkingar misstu einnig Erling Agnarsson meiddan af velli. „Þetta lítur bara hræðilega út. Við krossleggjum fingur og vonumst að niðurstaðan úr myndatökunni verði okkur jákvæð,“ bætti Arnar við. Ljóst er að Víkingur mun sakna Mc Lagan sé hann með slitið krossband og frá út leiktíðina. Honum óx ásmegin á síðustu leiktíð, sinni fyrstu í efstu deild hér á landi, eftir að hafa gengið í raðir Víkinga frá Fram þar sem hann rúllaði upp Lengjudeildinni sumarið 2021. Ásamt Mc Lagan geta þeir Ekroth, Halldór Smári Sigurðsson og Sveinn Gísli Þorkelsson allir spilað í miðverði. Þá hefur Matthías Vilhjálmsson einnig leyst þar af en hann var fenginn til liðsins frá FH til að spila framar á vellinum. Hvort það breytist nú kemur í ljós. Víkingur heimsækir Stjörnuna í 1. umferð Bestu deildar karla þann 10. apríl næstkomandi. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér. Fótbolti Íslenski boltinn Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira
Mc Lagan hóf leikinn í hjarta varnarinnar ásamt Oliver Ekroth. Á 65. mínútu þurfti Mc Lagan að fara meiddur af velli. Fékk hann aðstoð við að komast inn í hús. Eftir leik mætti Arnar Gunnlaugsson, þjálfari, í viðtal á Fótbolti.net. Þar sagðist hann óttast það versta. „Mestu áhyggjurnar núna eru varðandi Kyle, erum að bíða og vona að hann sé ekki með slitið krossband. Þetta leit ekki vel út, það návígi sem hann fór í,“ sagði Arnar en Víkingar misstu einnig Erling Agnarsson meiddan af velli. „Þetta lítur bara hræðilega út. Við krossleggjum fingur og vonumst að niðurstaðan úr myndatökunni verði okkur jákvæð,“ bætti Arnar við. Ljóst er að Víkingur mun sakna Mc Lagan sé hann með slitið krossband og frá út leiktíðina. Honum óx ásmegin á síðustu leiktíð, sinni fyrstu í efstu deild hér á landi, eftir að hafa gengið í raðir Víkinga frá Fram þar sem hann rúllaði upp Lengjudeildinni sumarið 2021. Ásamt Mc Lagan geta þeir Ekroth, Halldór Smári Sigurðsson og Sveinn Gísli Þorkelsson allir spilað í miðverði. Þá hefur Matthías Vilhjálmsson einnig leyst þar af en hann var fenginn til liðsins frá FH til að spila framar á vellinum. Hvort það breytist nú kemur í ljós. Víkingur heimsækir Stjörnuna í 1. umferð Bestu deildar karla þann 10. apríl næstkomandi. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Fótbolti Íslenski boltinn Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira