Innlent

Stór plástur í sár á úti­dyra­hurðinni á Siglu­fjarðar­kirkju

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hægri hurðin er komin í viðgerð en krossviðsplata fyllir í gatið.
Hægri hurðin er komin í viðgerð en krossviðsplata fyllir í gatið. Sigurður Ægisson

Allt helgihald fellur niður í Siglufjarðarkirkju á sunnudag eftir að útidyrahurð kirkjunnar gaf sig í vindi í morgun. Meðhjálpari segir að hurðin verði lagfærð en svo verði blankur söfnuðurinn að finna leið til að fjárfesta í nýrri hurð. Þessi sé komin vel til ára sinna.

Það var á sjöunda tímanum í morgun sem bankað var hjá Jóni Andrjesi Hinrikssyni á Siglufirði. Svipað var uppi á teningnum fyrir þremur til fjórum árum. Sami maður á ferð.

„Þá var hurðin opin, skökk og snúinn. Enda er hún barn síns tíma. Í morgun var hún fokin af og lá alveg úti á stétt. Hékk ekki einu sinni á hjörunum,“ segir Jón Andrjes.

Hann lýsir sér sem meðhjálpara í hjáverkum við kirkjuna. Hann segir sem svo virðist sem læsingin hafi verið biluð. En hurðin sé svo að segja ónýt. Þó eigi að lappa upp á hana, „hrækja í þetta“ eins og Jón Andrjes kemst að orði, en svo þurfi að fjárfesta í nýrri hurð.

„Þótt söfnuðurinn sé blankur.“

Hurðin féll á stéttina en var borin inn á kirkjugólf áður en hún var flutt í góðar hendur siglfirskra smiða.Sigurður Ægisson

Hvasst hefur verið á Siglufirði undanfarið í framhaldi af dúnalogni sem var í blíðviðri en kulda á mánudaginn. Smiðir á Siglufirði brugðust skjótt við í morgun. Krossviðsplötu var smellt í gatið svo ekki blæs inn. Þó verður ekkert af messuhaldi um helgina, hvorki barnastarfi né gospelmessa.

Hurðin er að líkindum um níutíu ára gömul eða jafngömul kirkjunni. Sigurður Ægisson sóknarprestur, sem greindi frá tíðindunum á Facebook, segir ljóst að kostnaður við kaup á nýrri hurð hlaupi á tveimur til þremur milljónum. Huga þurfi að lausn til langtíma. En á meðan sé allt gert til að helgistarf um páskana geti farið fram samkvæmt áætlun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×