Fjallabyggð

Fjallabyggð

Mannfjöldi: 1.966 (2025). Flatarmál: 364 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Siglufjörður, Ólafsfjörður.


Fréttamynd

Hvetur Veður­stofuna til að brjóta odd af of­læti sínu

„Veðurstofan þarf að brjóta odd af oflæti sínu og fara að gefa staðbundnari litakvarðaðar viðvaranir. Í dag er þeim „smurt út“ yfir heil spásvæði. Í gær var þannig allt Suðurland á appelsínugulu vegna hávaðaroks og sviptivinda í Eyjum og undir Eyjafjöllum. Einu staðbundnu viðvaranirnar eru fyrir höfuðborgarsvæðið!“

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Lentu aftur í ó­förum

„Sem betur fer vorum við ekki hérna í gær þegar þetta gekk á því að við hefðum líklega ekki lifað af. Ef við hefðum verið í rúminu eða í eldhúsinu þá hefðum við stórslasast.“ Þetta segir Ásta Gunna Kristjánsdóttir en hús fjölskyldunnar á Siglufirði stórskemmdist í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær. Þetta er í annað sinn sem náttúruöflin setja mark sitt á húsið.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta situr náttúru­lega í manni“

Íbúi á Siglufirði segir bæjarbúa standa saman í áfallinu eftir óveðrið í gær. Fjölskyldan hafi fengið skilaboð á skilaboð ofan um húsaskjól en þakið á húsi hennar fauk af í heilu lagi. Óljóst er hvenær þau geti gist í húsi sínu á ný.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum

Tveir karlmenn á sextugsaldri hafa verið dæmdir í fimm og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að búa til og sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum í mars 2021. Tveir aðrir voru ákærðir í málinu en þeir létust á meðan málsfrelið stóð yfir.

Innlent
Fréttamynd

Siggi stormur sár en dregur ekki í land

Siggi stormur segir að veðurspár fyrir verslunarmannahelgina hafi í megindráttum gengið eftir og Akureyringar geti vel við unað. Skipuleggjendur á Norðurlandi eru ósáttir og vilja meina að ótímabærar yfirlýsingar hafi fælt gesti frá. Lögreglan telur að fleiri séu á Akureyri nú en í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Tap vegna ó­tíma­bærra veðurspáa hlaupi á milljónum

Skipuleggjendur útihátiða á Norðurlandi eru búnir að fá sig fullsadda af glæfralegum yfirlýsingum veðurspámanna að sunnan. Sérstaklega þykir þeim veðurspá Sigurðar Ragnarssonar, Sigga Storms, súr í brotið. Tap vegna veðurspárinnar hlaupi á milljónum fyrir sveitarfélögin þrátt fyrir blankalogn og heiðan himinn.

Innlent
Fréttamynd

Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum

Bifhjólakappinn Ómar Geirsson telur að bikblæðing hafi orðið til þess að eldur kviknaði í bifhjóli hans, sem hafði skömmu áður staðist ástandsskoðun með glæsibrag.

Innlent
Fréttamynd

Elds­voði á Siglu­firði nam þriðjungi bættra tjóna

Heildarupphæð bættra brunatjóna nam rúmum þremur milljörðum í fyrra en fjöldi bættra tjóna var lægri en undanfarin ár og stórbrunar færri. Bruni í atvinnuhúsnæði fyrirtækisins Primex á Siglufirði nam þriðjungi þeirra bættra tjóna. 

Innlent
Fréttamynd

Selja mann­virki bæjarins á flug­vellinum á tólf milljónir

Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt tilboð ferðaþjónustufyrirtækisins Viking Heliskiing í fasteignir sveitarfélagsins á flugvallarsvæðinu á Siglufirði. Tilboðið hljóðar upp á tólf milljónir króna en um er að ræða tækjahús og gömlu flugstöðina.

Innlent
Fréttamynd

Kölluð út vegna afl­vana báts við Hellis­ey

Klukkan tíu í morgun var áhöfn björgunarskipsins Þórs í Vestmannaeyjum kölluð út vegna aflvana fiskibáts. Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að einn skipverji hafi verið um borð og taldi hann enga yfirvofandi hættu á ferðum fyrir utan aflleysið.

Innlent
Fréttamynd

Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð

Tilkynning um mikinn eld fyrir utan hús á Siglufirði barst til slökkviliðs Fjallabyggðar í dag. Þegar slökkvilið bar að garði hafði eldurinn náð í klæðingu, verönd og svalir hússins og höfðu rúður brotnað vegna hita.

Innlent
Fréttamynd

Loka­tölur úr Fjalla­byggð: Meiri­hlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Innlent
Fréttamynd

„Elsku pabbi, guð varð­veiti þig og blessi“

Ástvaldur Einar Steinsson, sjómaður og netagerðarmaður, er látinn, 95 ára að aldri. Inga Sæland, dóttir hans og mennta- og barnamálaráðherra, greindi frá andláti Ástvaldar í hjartnæmu myndbandi á Facebook fyrr í dag.

Innlent