Innlent

Níu gistu í Egils­búð í Nes­kaup­stað í nótt

Atli Ísleifsson skrifar
Frá aðgerðum björgunarsveitarmanna í Starmýri í Neskaupstað.
Frá aðgerðum björgunarsveitarmanna í Starmýri í Neskaupstað. Landsbjörg

Níu gistu í fjöldahjálparstöðinni í Egilsbúð í Neskaupstað í nótt. Ákveðið var að rýma mikinn fjölda húsa í bænum vegna snjóflóðanna sem féllu í bænum í gærmorgun.

Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum segir að alls hafi 429 manns leitað í Egilsbúð eftir að fjöldahjálparstöð var þar opnuð.

Fjöldahjálparstöðinni í Herðubreið á Seyðisfirði var lokað í gærkvöldi eftir að allir voru farnir. Enginn gisti því þar í nótt en alls komu sextíu gestir þangað í gær.

Allir voru svo farnir úr fjöldahjálparstöðinni í Grunnskólanum á Eskifirði um klukkan 20.30 í gærkvöldi og var henni þá lokað. 75 gestir leituðu í fjöldahjálparstöðina í gær.

Að neðan má sjá myndband af aðgerðum björgunarsveitarfólks í Neskaupstað í gær.

Oddur Freyr Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, segir í samtali við Vísi að nú sé verið verið að hafa til morgunmat í Egilsbúð fyrir fólkið sem þurfti að rýma.

Hann segir að ekki hafi komið upp nein sérstök vandamál í miðstöðinni og verður þar opið í dag.

Oddur Freyr beinir því sérstaklega til fólks að hafa samband í síma 1717 ef það vantar stuðning eða upplýsingar vegna rýminganna og flóðanna á Austfjörðum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×