Snjóflóð í Neskaupstað
1 2 ›
Vill Fjarðaleið fremur en Fjarðarheiðargöng Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og fyrrverandi samgönguráðherra vill breyta forgangsröðun jarðganga á Austfjörðum í þágu almannavarna. Í stað Fjarðarheiðarganga til Seyðisfjarðar verði svokölluð Fjarðaleið valin um Mjóafjörð. Innlent 23.5.2023 22:02
Heildartjónið nemur 150 milljónum króna Náttúruhamfaratrygging Íslands metur tjónið af völdum snjóflóðsins sem féll í Neskaupstað á 150 milljónir króna. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri stofnunarinnar, segir aðallega um að ræða tjón á gólfefnum og timburverki. Bifreiðar eru almennt undanþegnar tryggingunni. Innlent 6.4.2023 20:06
Tré rifnuðu upp með rótum í snjóflóðunum Veðurstofan telur að keilur ofan varnargarða í Neskaupstað sem og brattir þvergarðar hafi virkað vel til þess að draga úr krafti snjóflóðanna sem féllu á bæinn í lok mars. Ljóst er að flóðin voru kraftmikil en stór grenitré rifnuðu upp með rótum í þeim. Innlent 6.4.2023 10:42
Óvissustigi aflýst Óvissustigi Almannavarna sem var í gildi á Austfjörðum hefur verið aflýst, sem og óvissustigi Veðurstofu Íslands. Við taka umfangsmikil verkefni við hreinsun og endurreisn samfélagsins. Innlent 4.4.2023 12:45
Sálfélagslegur stuðningur í þjónustumiðstöð í Neskaupstað Almannavarnir hafa opnað þjónustumiðstöð í Neskaupstað sem á að aðstoða við hinar ýmsu áskoranir sem fólk á svæðinu glímir við eftir snjóflóð síðustu viku. Búið er að hrinda af stað söfnun fyrir þá sem sjá fram á mikinn kostnað vegna flóðanna. Innlent 4.4.2023 01:13
Æðruleysi fyrsta orðið sem kom upp í huga Katrínar Forsætisráðherra og umhverfisráðherra fóru til Neskaupstaðar í dag og ræddu við íbúa sem lentu í því að fá snjóflóð á heimili sín á mánudag. Forsætisráðherra segir mikið mildi að enginn hafi týnt lífi. Innlent 2.4.2023 23:06
Íbúar sem lentu í snjóflóðinu þurfa að greiða hundruð þúsunda Forstjóri Nátturuhamfaratryggingar Íslands segir hlutverk stofnunarinnar sé fyrst og fremst að bæta mikið tjón svo tryggja megi endurreisn samfélaga sem verða fyrir náttúruhamförum. Íbúar í Neskaupstað þurfa að bera hluta tjóns síns vegna snjóflóða sjálfir. Innlent 2.4.2023 11:55
Opna þjónustumiðstöð Almannavarna Ríkislögreglustjóri í samvinnu við Rauða krossinn og Fjarðarbyggð mun opna þjónustumiðstöð í Neskaupstað á morgun. Verkefni miðstöðvarinnar felast í stuðningi við íbúa og aðra sem fundið hafa fyrir áhrifum vegna snjóflóða. Sálrænn stuðningur verður í boði. Innlent 2.4.2023 10:43
Rýmingu aflétt Rýmingu á reitum 4 og 16 í Neskaupstað verður aflétt klukkan 16 í dag. Þar með hefur rýmingu í öllum bænum vegna snjóflóðahættu verið aflétt. Innlent 1.4.2023 14:52
Björgunarsveitir halda heim Það björgunarfólk sem ferðaðist til Austfjarða í vikunni til að aðstoða heimafólk mun ferðast aftur til sín heima í dag. Björgunarfólk frá öllu landinu tóku þátt í aðgerðum þar vegna snjóflóða sem féllu í vikunni. Innlent 1.4.2023 12:19
Horfa til afléttinga í ljósi góðra aðstæðna Snjóflóðahætta fer þverrandi á Austurlandi og standa vonir til að hægt verði að aflétta rýmingum fljótlega. Íbúi á Seyðisfirði er ósáttur við seinagang í upplýsingagjöf lögreglu til íbúa. Innlent 1.4.2023 12:11
Kötturinn fannst heill á húfi eftir snjóflóðið Köttur sem týndist í snjóflóðinu í Neskaupstað í liðinni viku hefur fundist heill á húfi. Innlent 1.4.2023 09:38
Ekki talið óhætt að aflétta rýmingum frekar Veðurstofa Íslands hefur kannað ástand hlíða á Austurlandi með tilliti til rýminga í dag. Ekki þykir óhætt að aflétta rýmingum frekar að svo stöddu. Innlent 31.3.2023 17:50
Markmiðið að hlúa að íbúum eftir áfall síðustu daga Viðbúið er að rýmingum verði aflétt í miklum mæli á Austfjörðum í dag en ekki er útlit fyrir að hægt verði að aflétta alls staðar strax. Mikil úrkoma er á svæðinu samhliða hlýindum og hafa flóð fallið nokkuð víða. Lögreglustjóri á Austurlandi segir markmiðið nú vera að hlúa að íbúum en ljóst sé að langtímaáhrif séu áföllum sem þessum. Innlent 31.3.2023 12:38
Rýmingu aflétt á nokkrum svæðum Veðurstofa Íslands hefur metið áframhaldandi rýmingarþörf á Austurlandi vegna snjóflóðahættu. Í kjölfar þess var ákveðið að aflétta rýmingu á nokkrum svæðum á Seyðisfirði, Eskifirði og í Neskaupstað. Innlent 31.3.2023 09:53
Engar fregnir borist af flóðum í nótt Appelsínugul viðvörun er enn í gildi á Austfjörðum vegna mikillar rigningar og asahláku sunnantil á svæðinu en norðantil er varað við slyddu eða snjókomu. Innlent 31.3.2023 07:21
Víðtækar lokanir þjóðvega í strandbyggðum Austfjarða Appelsínugul viðvörun er enn í gildi á Austfjörðum og er áfram talin mikil hætta á snjóflóðum og krapaflóðum. Almannavarnir hafa í dag gripið til frekari rýminga í Neskaupstað og á Eskifirði. Þá hafa hús einnig verið rýmd í Mjóafirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði, auk Seyðisfjarðar. Innlent 30.3.2023 21:42
Flóð fallið nokkuð víða og enn frekari rýmingar í Neskaupstað Ákveðið hefur verið að grípa til enn frekari rýminga í Neskaupstað vegna hættu á ofanflóðum en rýmingar eru þegar í gildi á nokkrum stöðum. Veður virðist vera að ná hámarki en appelsínugular viðvaranir eru í gildi vegna mikillar úrkomu. Flóð hafa verið að falla nokkuð víða í dag að sögn yfirlögregluþjóns á Austurlandi. Innlent 30.3.2023 18:24
Rýma fleiri hús á Eskifirði Búið er að lýsa yfir hættuástandi vegna ofanflóða á Eskifirði og verið að rýma hús þar. Rýmingin gildir frá klukkan fjögur í dag, þar til hún er felld niður. Innlent 30.3.2023 15:24
Frekari rýmingar í Neskaupstað bætast við Veðurstofan hefur ákveðið frekari rýmingu í Neskaupstað vegna ofanflóðahættu frá og með klukkan þrjú í dag. Fyrr í dag var ákveðið að grípa til rýminga á Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði. Rýmingar eru sömuleiðis í gildi á Seyðisfirði og Eskifirði. Innlent 30.3.2023 14:25
Munu líklega grípa til frekari rýminga vegna hættu á flóðum Líklega verður farið í frekari rýmingar á Austfjörðum eftir hádegi vegna slæmrar veðurspár. Helsta áhyggjuefnið núna eru möguleg krapaflóð og aurskriður en það bætist við snjóflóðahættu sem einnig er á svæðinu og hafa einhver flóð fallið í morgun. Yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum segir mikilvægt að fólk sýni sérstaka aðgát. Innlent 30.3.2023 12:28
Hvetja íbúa fyrir austan að huga að niðurföllum Lögreglan á Austurlandi biðlar til íbúa að huga að niðurföllum en búist er við því að úrkoma þar nái hámarki síðar í dag. Í tilkynningu segir að allar varúðarráðstafanir vegna snjóflóðahættu og annars séu enn til staðar. Innlent 30.3.2023 10:00
Tvöhundruð manns viðbúin að hefja björgun ef kallið kemur Almannavarnir hafa enn aukið viðbúnað sinn á Austfjörðum vegna mjög slæmrar veðurspár næsta sólarhring og mikillar hættu á snjóflóðum. Hættuástand er áfram í gildi á Seyðisfirði, Eskifirði og í Neskaupstað. Innlent 29.3.2023 22:20
Búist við umtalsverðri úrkomu en telja ekki þörf á frekari rýmingum Gert er ráð fyrir umtalsverðri úrkomu á Austfjörðum í kvöld og fram til föstudagsmorguns. Bæði er spáð snjókomu og rigningu. Töluverður fjöldi húsa á Austurlandi var rýmdur í kjölfar snjóflóða sem féllu á svæðinu í upphafi vikunnar. Veðurstofa telur að ekki sé þörf á frekari rýmingum að svo stöddu. Innlent 29.3.2023 18:03
Frekari rýmingar á Seyðisfirði og áfram enginn skóli í Neskaupstað Veðurstofan hefur ákveðið að rýma skuli að nýju hús á reit 14 á Seyðisfirði í varúðarskyni frá klukkan 21 í kvöld. Von er á mikilli snjókomu. Innlent 29.3.2023 14:10
Rýmingar áfram í gildi og mögulegt að þær verði víðtækari Rýmingar frá í gær í Neskaupstað, á Eskifirði og Seyðisfirði eru enn í gildi og hugsanlegt er að rýma þurfi nýju þau hús sem aflétt var af í gær. Innlent 29.3.2023 12:49
Senda liðsauka austur áður en veðrið skellur á Tuttugu björgunarsveitarmenn verða sendir með flugi til Austfjarða í dag til viðbótar við þá tugi sem þar eru þegar að störfum. Snjóflóðahætta á svæðinu hefur aukist með versnandi veðurspá. Mikil snjókoma er í kortunum í kvöld og úrkomuviðvörun á svæðinu orðin appelsínugul. Innlent 29.3.2023 11:44
Viðvörunin orðin appelsínugul á Austfjörðum Veðurstofan hefur breytt veðurviðvöruninni á Austfjörðum úr gulri í appelsínugula. Viðvörunin tekur gildi klukkan 19 í kvöld en von er á mikilli snjókomu á svæðinu. Veður 29.3.2023 11:13
Fjórði garðurinn hefði afstýrt hörmungunum Hættuástand er enn í gildi fyrir austan vegna snjóflóða. Ekki er víst að því verði aflétt á næstunni sökum þess hve veðurspáin fyrir svæðið er slæm. Ljóst er að snjóflóðavarnagarðar áttu stóran þátt í því að ekki fór verr þegar stærstu snjóflóðin féllu í gær. Innlent 28.3.2023 22:27
Rýmingu aflétt að hluta til Ákveðuð hefur að aflétta rýmingu á hluta þeirra húsa sem rýmd voru í Neskaupstað og á Seyðisfirði í gær. Þetta var ákveðið í kjölfar þess sem Veðurstofa Íslans mat aðstæður á Austfjörðum með tilliti til snjóflóðahættu í dag. Innlent 28.3.2023 18:04