Mögnuð þrenna Benzema í stórsigri Real Madrid

Karim Benzema skorar hér þriðja mark sitt í leiknum með bakfallsspyrnu.
Karim Benzema skorar hér þriðja mark sitt í leiknum með bakfallsspyrnu. Vísir/Getty

Karim Benzema skoraði þrjú mörk á sjö mínútum þegar Real Madrid vann 6-0 stórsigur á Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Spánarmeistararnir voru sigurstranglegri aðilinn fyrir leikinn í dag enda í öðru sæti deildarinnar á meðan Real Valladolid er í fallbaráttu og aðeins einu stigi fyrir ofan öruggt sæti.

Ef einhver hélt að Real Madrid myndu mæta værukærir í leikinn þá var það misskilningur. Leikmenn Madrid gengu frá leiknum í fyrri hálfleik með Karim Benzema fremstan í flokki.

Benzema skoraði þrennu á sjö mínútna kafla en áður hafði Rodrygo komið meisturunum yfir með marki á 22. mínútu leiksins. Síðasta markið var stórglæsilegt en hann skoraði þá með bakfallsspyrnu úr teignum. Enginn hefur skorað þrennu á skemmri tíma í búningi Real Madrid síðan Fernando Hierro skoraði þrennu í leik liðsins árið 1992. 

Í síðari hálfleik bættu Marcos Asensio og Lucas Vasquez við mörkum og lokatölur 6-0 Real Madrid í vil.

Með sigrinum minnkar Real Madrid forskot Barcelona á toppnum niður í tólf stig en Börsungar eiga sigurinn vísan þegar ellefu leikir eru eftir af deildakeppninni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira