Kínverjar æfa hvernig þeir myndu umkringja Taívan Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. apríl 2023 15:18 Taívanir sögðust myndu bregðast við af yfirvegun en sendu herþotur á loft til að fylgjast með. epa/Ritchie B. Tongo Þriggja daga heræfingar Kínahers, sem miða að því að æfa það hvernig herinn myndi umkringja Taívan ef til átaka kæmi, standa nú yfir. Stjórnvöld í Pekíng segja æfingarnar viðvörun til yfirvalda á eyjunni.
Æfingarnar hófust nokkrum klukkustundum eftir að Tsai Ing-wen, forseti Taívan, snéri aftur eftir opinbera heimsókn til Bandaríkjanna. Varnarmálaráðuneyti Taívan sagði að 71 herflugvél Kínverja og níu skip hefðu farið yfir miðlínuna á Taívan-sundi. Línan markar óviðurkennd skil yfirráðasvæðis Kína og Taívan. Samkvæmt Reuters var skotum hleypt af á einu skipanna þegar það fór framhjá Pingtan-eyju, sem er sú eyja sem liggur næst Kína. Kínverjar halda reglulega heræfingar umhverfis Taívan en talið er að um sé að ræða viðbrögð við heimsókn Tsai Ing-wen til Bandaríkjanna, þar sem hún átti meðal annars fund með Kevin McCarthy, forseta neðri deildar Bandaríkjaþings. Tsai sagði á laugardaginn að ríkisstjórn hennar myndi vinna áfram að því með Bandaríkjunum og öðrum lýðræðisríkjum, gegn útþenslustefnu Kína. Michael McCaul, formaður utanríkismálanefndar fulltrúadeildarinnar, sagði að Bandaríkjamenn myndu sjá Taívönum fyrir vopnum, „ekki fyrir stríð, heldur til að halda frið“. Varnarmálaráðuneyti Taívan segir að Taívanir muni bregðast við heræfingum Kínverja af yfirvegun.
Kína Taívan Hernaður Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Erlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Sprengdu næst stærstu olíudælustöð Rússlands Erlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Keyrði aftan á strætisvagn Innlent Fleiri fréttir Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Sprengdu næst stærstu olíudælustöð Rússlands Sautján ára og í leit að peningum fyrir spöngum „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Rufu einangrun jaðarhægrisins til að afnema umhverfisreglur Enginn ákærður eftir umdeilt þrjú hundruð manna áhlaup Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Vilja ekki feita innflytjendur Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu BBC biður Trump afsökunar en hafnar bótakröfu Eldar í nær öllum hverfum eftir árásir Rússa á Kænugarð Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Sjá meira