Erlent

Átta ára ferðalag til Júpíters hafið

Samúel Karl Ólason skrifar
JUICE á toppi Ariana 5 eldflaugar á skotpalli í Frönsku-Gvæjana í Suður-Ameríku.
JUICE á toppi Ariana 5 eldflaugar á skotpalli í Frönsku-Gvæjana í Suður-Ameríku. ESA

Starfsmenn Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) gera í dag aðra tilraun til að skjóta geimfarinu JUICE af stað til Júpíters. Þar á geimfarið að kanna reikistjörnuna og þrjú stór ístungl Júpíters, sem heita Ganýmedes, Kallistó og Evrópa. 

Uppfært: Geimskotið sjálft heppnaðist vel og starfsmenn ESA hafa náð sambandi við JUICE. Allt virðist hafa farið eins og vonast var eftir.

Hætt var við geimskotið frá Frönsku-Gvæjana í gær vegna hættu á eldingum. Reyna á að skjóta geimfarinu á loft með Ariana 5 eldflaug klukkan 12:14 að íslenskum tíma.

Eftir að JUICE verður skotið á loft líður þriggja mánaða tímabil þar sem ganga á úr skugga um að vísindabúnaður geimfarsins virkar. Það verður svo í ágúst á næsta ári sem geimfarið á að nýta þyngdarafl tunglsins og jarðarinnar til að auka hraða sinn.

Vegna stærðar JUICE mun ferðalagið  taka átta ár og mun það fara nokkra hringi um jörðina og Venus til að safna hraða fyrir ferðina til Júpíters.

Hér má sjá upplýsingar um langt ferðalag JUICE til Júpíters.ESA

Hægt er að fylgjast með geimskotinu í spilaranum hér að neðan en útsendingin hefst 11:45.

Næstu daga eftir geimskotið, fari það eins og vonast er, munu vísindamenn ESA vinna að því að koma sólarsellum og loftnetum JUICE í gagnið. JUICE er meðal annars búið nákvæmum myndavélum og skynjurum og geta áhugasamir fundið frekari upplýsingar um búnað geimfarsins hér á vef ESA.

Mikil áhersla lögð á Ganýmedes

Þegar JUICE nær til Júpíters vonast vísindamenn til þess að geta fundið vísbendingar um það hvort mögulegt sé að líf megi finna á tunglum Júpíters, þar sem talið er að finna megi vatn í miklu magni undir ísilögðu yfirborðinu.

Talið er að á Ganýmedes, Kallistó og Evrópu megin finna allt að sex sinnum meira vatn en á jörðinni.

Geimfarið verður notað til að greina þessi tungl og gægja undir yfirborðið svo auka megi skilning vísindamanna á því hvernig tunglin mynduðust á sporbraut um gasrisan Júpíter og hvort þar megi finna jarðvirkni.

Mikil áhersla verður lögð á Ganýmedes en tunglið er það eina í sólkerfinu sem talið er vera með eigin segulsvið. Annars eru einungis jörðin og Merkúr með segulsvið sem meðal annars verndar reikistjörnurnar gegn skaðlegri geislun frá sólinni.

Frekari upplýsingar um helstu markmið JUICE má finna hér á vef ESA.

Áhugasamir munu geta fylgst með ferðalagi JUICE á samfélagsmiðlum eins og hér að neðan.


Tengdar fréttir

Hætt við geimskot JUICE vegna eldingahættu

Starfsmenn Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) ætla í dag að skjóta geimfarinu JUICE af stað til Júpíters. Þar á geimfarið að kanna reikistjörnuna og þrjú stór ístungl Júpíters, sem heita Ganýmedes, Kallistó og Evrópa. Vegna stærðar JUICE mun ferðalagið þó taka átta ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×