
Júpíter

Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu
Fyrsti könnunarleiðangurinn til ístunglsins Evrópu gæti hafist í dag með geimskoti bandaríska geimfarsins Europa Clipper. Evrópa þykir einn mest spennandi hnöttur sólkerfisins því neðanjarðarhaf er talið að finna undir ísilögðu yfirborðinu.

Nýjar myndir af eldfjallatunglinu Íó
NASA deildi í nótt nýjum myndum af Íó tungli Júpíters. Myndirnar voru teknar af svokallaðri JunoCam í geimfarinu Juo sem er um þessar mundir á sveimi um sólkerfið okkar.

Geimárið 2023: Vísindastörf í geimnum ná nýjum hæðum
Eins og undanfarin ár hefur margt átt sér stað í geimnum og í geimvísindum á jörðinni. Geimskotum hefur farið hratt fjölgandi á undanförnum árum og mun þeim fjölga áfram.

Átta ára ferðalag til Júpíters hafið
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) gera í dag aðra tilraun til að skjóta geimfarinu JUICE af stað til Júpíters. Þar á geimfarið að kanna reikistjörnuna og þrjú stór ístungl Júpíters, sem heita Ganýmedes, Kallistó og Evrópa.

Hætt við geimskot JUICE vegna eldingahættu
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) ætla í dag að skjóta geimfarinu JUICE af stað til Júpíters. Þar á geimfarið að kanna reikistjörnuna og þrjú stór ístungl Júpíters, sem heita Ganýmedes, Kallistó og Evrópa. Vegna stærðar JUICE mun ferðalagið þó taka átta ár.

Björtustu reikistjörnurnar í nánu samneyti í kvöld
Venus og Júpíter, tvær björtustu reikistjörnurnar á næturhimninum, verða þétt saman á himni í kvöld. Hægt verður að sjá þær saman í sjónsviði handsjónauka og víðra stjörnusjónauka með lítilli stækkun.

Geimárið 2022: Gleggsta auga mannkynsins opnaðist og jarðvarnir voru efldar
Geta mannkynsins til þess að rannsaka óravíddir alheimsins tók risavaxið stökk fram á við á árinu sem er að líða. James Webb-geimsjónaukinn hreiðraði um sig í sólkerfinu og byrjaði að senda myndir sem eiga sér enga hliðstæðu aftur til jarðar.

Gæddi framhjáflug Juno hjá Evrópu lífi
Ístunglið Evrópa birtist ljóslifandi á hreyfimynd sem íslenskur tölvunarfræðingur vann upp úr myndum bandaríska geimfarsins Juno þegar það þeyttist þar fram hjá á dögunum. Evrópa þykir eitt mest spennandi fyrirbæri sólkerfisins.

Fyrstu myndirnar af vatnaveröldinni Evrópu í tuttugu ár
Könnunarfarið Júnó er byrjað að senda myndir frá nærflugi sínu hjá ístunglinu Evrópu við Júpíter. Myndirnar eru þær fyrstu af tunglinu frá því að Galíleó flaug þar fram hjá fyrir 22 árum. Talið er að haf fljótandi vatns sé að finna undir ísilögðu yfirborði Evrópu þar sem líf gæti mögulega þrifist.

Gæði nýrra mynda af Júpíter komu á óvart
Geimvísindamenn birtu í dag nýjar myndir af gasrisanum Júpíter sem teknar voru með James Webb-geimsjónaukanum. Júpíter er áhugaverð reikistjarna og vonast vísindamenn til þess að skilja hana mun betur með gögnunum frá James Webb.

Hubble lýkur árlegum veðurathugunum í ytra sólkerfinu
Nýjar myndir Hubble-geimsjónaukans af gas- og ísrisunum í utanverðu sólkerfinu sýna vísindamönnum hvaða breytingar hafa orðið á veðri og vindum þar. Sjónaukinn skyggnist árlega út í ytra sólkerfið til að vakta stærstu reikistjörnur þess.

Bestu myndir af Ganýmedes í áratugi
Myndir sem bandaríska geimfarið Juno tók af Ganýmedes, stærsta tungli Júpíters, og bárust til jarðar í vikunni eru þær skýrustu í áratugi. Geimfarið flaug þá nær tunglinu en nokkuð annað geimfar hefur gert frá því á síðustu öld.

Heiðskírt með 400 metrum á sekúndu
Veðurofsinn í heiðhvolfi Júpíters, stærstu reikistjörnu sólkerfisins, hefur nú verið mældur beint í fyrsta skipti. Vindhraðinn mældist ríflega 400 metrar á sekúndu við heimskaut gasrisans og telja stjörnufræðingar veðurfyrirbrigðið einstakt í sólkerfinu.

Satúrnus tekur fram úr Júpíter með tuttugu nýfundnum tunglum
Nýju tunglin eru lítil og á víðri braut um Satúrnus. Þau eru talin leifar stærra tungls sem splundraðist við árekstur, annað hvort við annað tungl eða utankomandi hnullung.

Vatnsgos á Evrópu vekur vonir um líf undir ísnum
Greining á rúmlega tuttugu ára gömlum gögnum bendir til þess að vatnsstrókar stígi upp frá yfirborði ístungls Júpíters.

Innri gerð Júpíters afhjúpuð með mælingum Juno
Beltin í lofthjúpi gasrisan ná þúsundir kílómetra niður fyrir yfirborðið og innra byrðið snýst að mestu leyti eins og hnöttur úr föstu efni.

Teslan mun hendast út úr sólkerfinu eða brenna upp
Þyngdarkraftur Júpíters gæti slöngvað rafbílnum út úr sólkerfinu í fjarlægri framtíð.

Síðasta myndin af Stjörnumanni Elon Musk
Hann þeysist nú um geiminn á rauðum sportbíl sem Musk sjálfur átti eftir að hafa verið skotið út í geim í gær.

Bíll Musk á leiðinni út í smástirnabeltið
Upphaflega stóð til að Tesla-rafbillinn færi á braut um sólina við sporbraut Mars. Falcon Heavy-eldflaugin virðist hafa gert gott betur.