Ofurmóðirin María sem eignaðist sex sinnum tvíbura Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 15. maí 2023 13:15 Afkomendur Maríu og Ólafs eru um fimmhundruð. María Rögnvaldsdóttir er að öllum líkindum sú íslenska kona sem hefur oftast eignast tvíbura, eða sex sinnum. Á sextán árum eignaðist María 15 börn með eiginmanni sínum Ólafi Hálfdánarsyni, þrjá einbura og sex tvíbura. Auk þess tóku hjónin að sér einn fósturson og ólu hann upp með barnahópnum. Geri aðrir betur.
María er til umfjöllunar í lokaþætti Tvíbura á RÚV í kvöld. Þar rýnir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir í arfgengi þess að eignast tvíbura auk þess sem sýnt verður brot úr um hundrað ára gömlu viðtali við Maríu ofurtvíburamömmu. María fæddist á Svarfhóli í Álftafirði 1891. Henni er lýst sem mikilli mannkostakonu og hetju en María lifði til 98 ára aldurs og var aldursforseti Bolvíkinga þegar hún lést. Í minningargrein sem Pétur Pétursson, héraðslæknir, skrifaði um Maríu segir. María er sannkölluð ofurkona. „Ekki fékk ég tækifæri til að kynnast Maríu neitt að ráði, fyrr en hún var komin á tíræðisaldur. Þótt ég ætti að heita læknir hennar frá 1974, þá sá ég hana sárasjaldan, því ekki var hún kvellisjúk og taldi það lítt til heilsubótar fallið að æða til læknis vegna smákvilla eða vera sífellt að gleypa eitthvert meðalasull. Mér varð þó snemma ljóst af afspurn, að heilsuhreysti Maríu var líffræðilegt undur.“ Fimmhundruð afkomendur Afkomendur Maríu og Ólafs eru um fimmhundruð. Reynir Hlíðar Jóhannsson, dóttursonur Maríu, segir ömmu sína hafa verið sér mikil fyrirmynd og minnist þess aldrei að hafa heyrt hana kvarta. „Amma var stórkosleg manneskja í alla staði. Hún reyndist mér og öllum einstaklega vel. Hún og afi voru indælisfólk. Þau eru bæði ættuð innan úr Djúpi þar sem þau bjuggu fyrst um sinn og ég held að flest tvíburapörin séu fædd þar. Svo fluttu þau í Tröð, sem er rétt fyrir ofan Bolungarvík,“ segir Reynir Hlíðar. Reynir Hlíðar með ömmu sinni Maríu Jónína Guðmundsdóttir, barnabarn Maríu, tekur í sama streng og segir að amma hennar og afi hafi verið samrýmd hjón. „Amma stjórnaði náttúrulega öllu en hún var hörkukona fram eftir öllu. Á þeim tíma sem börn ömmu og afa voru að ala sín börn upp bjuggum við flest í Bolungarvík þannig að þá má í raun segja að við höfum verið hálft bæjarfélagið,“ segir Jónína. Hún bætir við að hún haldi að tvíburamet ömmu sinnar hafi ratað í heimsmetabókina á sínum tíma. Einnig fjölbura amma Oftast var ekki nema hálft annað ár á milli barna Maríu og Ólafs og flest voru þau í kringum 16 merkur. Allir tvíburarnir voru tvíeggja og komust á legg nema ein stúlka sem lést skömmu eftir fæðingu. Tvær dætur Maríu eignuðust einnig fjölbura, önnur þeirra eignaðist tvíbura og hin þríbura. Í lokaþætti Tvíbura í kvöld fá landsmenn svör við því hvers vegna sumir eru líklegri til að eignast tvíbura en aðrir. Í þættinum verður meðal annars skyggnst inn í líf fjölskyldu á Vopnafirði sem hefur fengið þennan lottóvinning, tvo fyrir einn, í þrígang á síðustu árum.
Bolungarvík Barnalán Tengdar fréttir Farsælir íslenskir tvíburar Tvíburar hafa verið á margra vörum síðustu vikur eftir að sjónvarpsþættir Ragnhildar Steinunnar um tengsl og samfylgd tvíbura í gegnum lífið fór í loftið. Fjölmargar erlendar stjörnur eru tvíburar, má þar til dæmis nefna Elvis Presley, Scarlet Johansson, Vin Diesel, Gisele Bündchen, Ashton Kutcher og Kiefer Sutherland. Vísir tók saman lista yfir farsæla Íslendinga sem eru tvíburar. 1. maí 2023 17:35 Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira
Farsælir íslenskir tvíburar Tvíburar hafa verið á margra vörum síðustu vikur eftir að sjónvarpsþættir Ragnhildar Steinunnar um tengsl og samfylgd tvíbura í gegnum lífið fór í loftið. Fjölmargar erlendar stjörnur eru tvíburar, má þar til dæmis nefna Elvis Presley, Scarlet Johansson, Vin Diesel, Gisele Bündchen, Ashton Kutcher og Kiefer Sutherland. Vísir tók saman lista yfir farsæla Íslendinga sem eru tvíburar. 1. maí 2023 17:35