Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Fjöldi fólks á Vestfjörðum margfaldast í dag þegar ferðamenn streyma á svæðið til að fylgjast með almyrkvanum. Mest er álagið á sunnanverðum fjörðunum en Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir viðbúnað ganga samkvæmt áætlun. Innlent 12.8.2026 10:44
Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Sem viðbragð við almyrkvanum 12. ágúst verður lögregluþjónum á vakt fjölgað um sextán sem er nánast fjórfalt á við venjulegan dag. Umferðarstýring verður víða og verður að hámarki þrjú þúsund bílum leyft að keyra vestur að Látrabjargi. Innlent 11.8.2026 20:56
Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar segir útsýnispall á Bolafjalli alveg öruggan þrátt fyrir að sprungur séu í glerveggjum þess. Til stendur að bæta veginn upp fjallið en alvarlegt slys varð þar fyrir um viku. Innlent 4.8.2026 14:07
Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta K-listinn á Bolungarvík, Máttur meyja og manna, tapaði manni í sveitarstjórnarkosningunum í gær og þar með meirihlutanum. O-listinn Betri Bolungarvík hlaut 57,6 prósent atkvæða en K-listinn 42,4 prósent. Innlent 17. maí 2026 10:57
Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Bæjarstjórinn í Bolungarvík segir bæjarbúa svekkta yfir þeim fréttum að matvöruverslun bæjarins sem hefur verið rekin undir merkum Kjörbúðarinnar sé að loka í þessum mánuði. Innlent 5. maí 2026 11:34
Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Kjörbúðin í Bolungarvík lokar um miðjan mánuðinn. Framkvæmdastjóri segir ákvörðunina tekna eftir ítarlega skoðun en búðin hafði verið rekin með tapi í lengri tíma. Viðskipti innlent 4. maí 2026 18:38
Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða. Innlent 16. apríl 2026 22:20
Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur. Innlent 16. apríl 2026 12:24
Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Vegagerðin og Icelandair hafa náð samkomulagi um flug til Ísafjarðar. Samningurinn gildir til fjögurra ára. Lágmarksfjöldi ferða er 452 hringferðir á ári. Innlent 16. apríl 2026 08:38
Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Þorsteinn Másson, sérfræðingur í orkuskiptum segir Vestfirði eiga þess kost að nýta orkuna oftar en einu sinni með gagnaveri og varar við því að svæðið festist enn frekar í dísellausnum. Viðskipti innlent 30. mars 2026 06:47
Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi. Innlent 24. mars 2026 21:00
Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Framleiðsluvélin sem notuð er til að búa til hafravörur Veru Örnudóttur bilaði nýlega og ekki verður hægt að framleiða meira af veganskyrinu eða öðrum hafravörum fyrr en í fyrsta lagi í maí. Arna María Hálfdánardóttir, markaðsstjóri fyrirtækisins, segir það högg og vont fyrir bæði fyrirtækið og viðskiptavini. Neytendur 17. mars 2026 06:45
Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Utanríkisráðuneytið, Bolungarvíkurkaupstaður og varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar hafa undirritað samkomulag um veghald á Bolafjalli og hefur ábyrgð á rekstri vegarins verið flutt frá utanríkisráðuneytinu til Bolungarvíkurkaupstaðar. Innlent 13. mars 2026 13:45
Nýtt framboð í Bolungarvík Nýtt framboð hefur verið boðað til sveitarstjórnar í Bolungarvík. Framboðið nefnist Betri Bolungarvík og hefur stofnfundur verið boðaður á bæjarkránni Verbúðinni næstkomandi fimmtudagskvöld. Innlent 2. mars 2026 13:13
Leita vitna að atviki í Bolungarvíkurgöngum Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir upplýsingum frá vitnum um ferðir ökumanns sem ók í gegnum Bolungarvíkurgögn. Lögreglan vill ná tali af umræddum ökumanni. Innlent 20. febrúar 2026 14:50
Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Lagafrumvarp um lagareldi, sem nú er til umfjöllunar, markar tímamót. Þar er í fyrsta sinn lögð fram heildstæð löggjöf um eina af mikilvægustu atvinnugreinum landsins, með skýrari ramma, auknum fyrirsjáanleika og skýrum kröfum um umhverfisvernd, vöktun og ábyrgð. Skoðun 9. febrúar 2026 17:01
Kaupa bræðurna út: „Við vorum sammála um að vinna ekki lengur saman“ Hjónin Jakob Valgeir Flosason og Björg Hildur Daðadóttir hafa keypt tvo bræður Jakobs Valgeirs út úr útgerðarfélaginu Jakobi Valgeiri ehf. Þeir áttu 25 prósent í félaginu á móti hjónunum. Viðskipti innlent 2. september 2025 14:55
Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Íbúi í Bolungarvík pantaði dúkkuhús úr leikfangaverslun í Reykjavík en fyrir sendinguna átti hann að greiða rúmar tuttugu þúsund krónur. Hann segir um duldan landsbyggðaskatt að ræða þar sem íbúi á höfuðborgarsvæðinu þyrfti einungis að greiða um sex þúsund krónur í sendingargjald. Innlent 14. ágúst 2025 11:58
Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Héraðsdómur Vestfjarða hefur sýknað bátaverkstæði í Bolungarvík af kröfum fiskiútgerðarinnar Glifsu, sem tókst ekki að sanna að verkstæðið hafi valdið tjóni í bátsvél útgerðarinnar. Margt annað gæti hafa átt sinn þátt í biluninni, til dæmis að vélin væri sautján ára gömul. Innlent 29. júlí 2025 10:34
Bátar brenna í Bolungarvík Eldur kviknaði í tveimur bátum í Bolungarvíkurhöfn í dag. Mikið viðbragð er á vettvangi og slökkvistarf stendur yfir. Innlent 27. júlí 2025 11:59
Jakob Valgeir lét Guðbjart bróður sinn fara Guðbjartur Flosason framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf var látinn fara í lok mars en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá blautu barnsbeini. Viðskipti innlent 20. maí 2025 14:19
Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Vörubílstjórafélagið Mjölnir á Selfossi átti lægsta boð í smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Tilboð Selfyssinga hljóðaði upp á 1.626 milljónir króna, sem er 0,1 prósenti yfir kostnaðaráætlun. Innlent 29. apríl 2025 18:54
Ráðinn forstjóri Arctic Fish Fiskeldisfélagið Arctic Fish hefur ráðið Daníel Jakobsson sem forstjóra frá og með 1. maí 2025. Daníel tekur við stöðunni af Stein Ove Tveiten. Viðskipti innlent 29. apríl 2025 07:14
Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp undir forystu Vegagerðarinnar til að kanna kosti þess og galla að skilgreina vegina sem mynda hringleið um Vestfirði sem hringveg sem fengi vegnúmerið 2. Þetta er í samræmi við tillögu nefndar forsætisráðherra um eflingu byggðar á Ströndum. Innlent 20. apríl 2025 10:10