Evrópusæti í höfn í fyrsta skipti í sögunni Smári Jökull Jónsson skrifar 21. maí 2023 15:11 Leikmenn Brighton fagna með Pascal Gross eftir að hann skoraði þriðja mark liðsins í sigrinum í dag. Vísir/Getty Brighton tryggði sér í dag sæti í Evrópukeppni á næsta tímabili í fyrsta sinn í sögunni. Liðið vann öruggan 3-1 heimasigur á föllnu liði Southampton.
Lið Brighton hefur heillað marga í vetur og þjálfarinn Roberto De Zerbi, sem tók við af Graham Potter í upphafi tímabils, gert frábæra hluti með liðið. Fyrir leikinn í dag var ljóst að liðið myndi tryggja sér sæti í Evrópukeppni á næsta tímabili með sigri en þeim áfanga hefur félagið aldrei áður náð. Það var ljóst strax frá upphafi í hvað stefndi. Lið Southampton er nú þegar fallið í Championship-deildina og hefur því að litlu að keppa. Hinn ungi Evan Ferguson kom heimamönnum yfir á 29. mínútu eftir sendingu Alexis Mac Allister og Ferguson bætti sínu öðru marki við skömmu fyrir hálfleik. Staðan í hálfleik 2-0 og Evrópusætið í augnsýn. Mohamed Elyounoussi minnkaði reyndar muninn fyrir gestina snemma í síðari hálfleik en það var eina skotið hjá Southampton á mark Brighton í dag. WE RE ALL GOING ON A EUROPEAN TOUR — Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) May 21, 2023 Pascal Gross innsiglaði síðan sigur Brighton með þriðja marki liðsins á 69. mínútu og eftir það var engin spenna í leiknum. Lokatölur 3-1 og fögnuður leikmanna og starfsliðs Brighton var mikill eftir leik. Enn á eftir að koma í ljós hvort Brighton spilar í Evrópu- eða Sambandsdeildinni á næsta tímabili. Liðið þarf eitt stig úr þeim tveimur leikjum sem það á eftir til að ná sæti í Evrópudeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Körfubolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Fótbolti Fleiri fréttir Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Sjá meira