Rökin fyrir frjálsum handfæraveiðum Eyjólfur Ármannsson skrifar 30. maí 2023 07:31 Strandveiðitímabilið hófst 2. maí sl. í fimmtánda sinn frá því strandveiðum var komið á í núverandi mynd. Einungis 10.000 tonn af þorski eru í strandveiðipottinum á veiðitímabilinu sem stendur í 48 daga frá maí til ágúst. Líklegt er að veiðum verði hætt fyrr og veiðidagar verði færri 48 vegna skorts á aflaheimildum. hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks nemur tæpum fimm prósentum. Strandveiðar þó takmarkaðar séu hafa sannað gildi sitt. Þær eru hagkvæmar og hafa reynst vel fyrir hinar dreifðu sjávarbyggðir og yfir sumartímann hleypt auknu lífi í brothættar byggðir víða um land. Auk þessa gefið fjölbreyttum hópi sjómanna atvinnufrelsi og tækifæri til handfæraveiða. Smábátaútgerð hefur spornað gegn samþjöppun og komið í veg fyrir að fjölbreyttur sjávarútvegur legðist af á landsbyggðinni. Strandveiðar eru umhverfisvænar, þær valda minnstu raski í hafrýminu, hafa minnsta kolefnissporið og hámarka verðmæti aflans. Markmið fiskveiðistjórnunarlaga hafa ekki náðst Markmið laga um fiskveiðistjórnun er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu nytjastofna á Íslandsmiðum og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Kvótakerfinu var komið á til þess að vernda íslenska fiskistofna fyrir ofveiði. Sé litið til markmiðsins um verndun þá hefur árangurinn ekki leitt til uppbyggingar fiskistofna. Kvótakerfinu var komið á fót til bráðabirgða árið 1984. Aflamark í þorski var þá lækkað í 200.000 tonn til að byggja upp þorskstofninn. Það eru sömu veiðiheimildir og í dag. Hafrannsóknastofnun lagði til að afli fiskveiðiárið 2022/2023 yrði ekki meira en 208.846 tonn. Mikil nákvæmni það. Gríðarlegar tæknibreytingar sl. 40 ár hafa einnig leitt til mikillar hagkvæmni. Líklegt er að þær haldi áfram og verða enn hraðari á næstu árum. Segja má að kvótakerfið hafi einnig leitt til hagkvæmni með samruna fyrirtækja í greininni. Ríkið gerði aldrei kröfu eða skapaði skilyrði fyrir hagræðingu innan greinarinnar fyrir daga kvótans. Árum saman var gengi íslensku krónunnar fellt þegar útgerð stóð illa. Útgerðarstjóri fór til þingmanns, sem fór til ráðherra og seðlabankastjóri felldi gengi íslensku krónunnar. Frekar var þjóðin gerð fátækari sem nam gengisfellingu en krafa væri um hagræðingu. Hún kemur ekki fyrr en með kvótasetningu. Markmiðin um að tryggja traust atvinnu og byggð í landinu hafa ekki náðst í þeim sjávarbyggðum þar sem kvótaeigandi er ekki með útgerð. Staða hinna dreifðu sjávarbyggða staðfestir það. Sjávarbyggðum hefur hnignað og íbúum fækkað. Þessi þróun mun halda áfram verði nýtingarréttur sjávarbyggðanna ekki viðurkenndur. Það er viðurkenning á atvinnufrelsi og búseturétti í sjávarbyggðum landsins. Vissulega hefur fískeldi styrkt byggð víða sem ný atvinnugrein og er mikilvæg viðbót. Ferðaþjónusta er það einnig yfir sumartímann og eykur fjölbreytni í atvinnulífi. Það breytir því ekki að sjávarútvegur er sérstaklega mikilvægur fyrir atvinnu og grundvöllur byggðar víða á landsbyggðinni og í sjávarbyggðunum. Viðurkenna þarf að aflahámarkskerfið hefur hvorki skilað þeim markmiðum sem lög um fiskveiðistjórnun stefna að né þeim árangri sem vonir stóðust til. Einnig þarf að viðurkenna réttmæti gagnrýni á hafrannsóknir og veiðiráðgjöf og gera umbætur. Strandveiðikerfið tryggir ekki jafnræði og atvinnufrelsi Núverandi strandveiðikerfi með 48 veiðidögum og litlum aflaheimildum var sett á í kjölfar álits Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 2007. Álitið sagði að stjórnkerfi fiskveiða bryti á jafnræði borgaranna samkvæmt alþjóðasamningi um borgarleg og stjórnmálaleg réttindi. Strandveiðikerfið í núverandi mynd tryggir ekki jafnræði borgaranna. Til þess eru takmarkanir á veiðunum eru of miklar og meiri en nauðsyn krefur. Gæta verður meðalhófs við það ná því markmiði sem stefnt er að, sem er verndun fiskistofna, og réttlæta takmarkanir á atvinnufrelsi. Takmarkanir á atvinnufrelsi þarf að byggja á því að veiðar ógni fiskistofnum. Verndunin þarf að ná til veiðarfæra sem ógna fiskistofnun, ekki þeirra sem ekki ógna þeim. Handfæraveiðar með nokkrum önglum á bát gera það ekki. Þegar kemur að handfæraveiðum gengur skerðingin því lengra en nauðsyn krefur. Handfæraveiðar á smábátum búa einnig við náttúrulegar takmarkanir vegna veðurs og sjólags. Þetta auk lögbundinna frídaga ættu að vera nægar takmarkanir stóran hluta ársins. Núverandi ríkisstjórn hefur gegnið mjög gegn hagsmunum strandveiða og sjávarbyggðanna. Fyrsta verk sjávarútvegsráðherra VG var reglugerðarbreyting um að skerða þorskveiðiheimildir til strandveiða sumar 2022. Breytingin var á reglugerð sem hafði tekið gildi í ágúst 2021 - rétt fyrir kosningar - en með henni eru þorskveiðiheimildir skertar um 1.500 tonn. Aflaheimildir lækkuðu með því úr 10.000 tonnum í 8.500. Byggðakvótinn var einnig lækkaður um 874 tonn, úr 4.500 tonnum í 3.626 tonn. Hér var um umtalsverða skerðingu að ræða, sem fór þvert gegn kosningaloforðum VG í Norðvesturkjördæmi. Stjórnvöld hafa ekki tryggt strandveiðikerfinu nægjanlegar aflaheimildir til að tryggja 48 veiðidaga. Í fyrra var veiðum hætt 21. júlí sl. vegna skorts á aflaheimildum. Líklegt er að svipað verði upp á teningnum í ár. Sátt í samræmi markmið við fiskveiðistjórnunarlaga og réttarvitund almennings Rétturinn til handfæraveiða er ævaforn og á styrka stoð í réttarvitund almennings. Í Jónsbók frá 1281, lögbók Íslendinga í árhundruð, segir „Allir menn eigu at veiða fyrir utan netlög at ósekju.“ Kvótakerfið var sett til verndar fiskistofnum og á því að ná til þeirra veiðiaðferða og veiðarfæra sem ógna fiskistofnunum. Handfæraveiðar með önglum ógna ekki fiskistofnum og ber því að gefa þær frjálsar. Rökin fyrir núgildandi takmörkun handfæraveiða eru því ekki fyrir hendi og ættu að vera fyrir utan kvótasetningu. Handfæraveiðar gefa góðar upplýsingar um ástand fiskistofna við strendur landsins sem ætti að nýta betur. Auka þess að ógna ekki fiskistofnun og vera hagkvæmar þá myndu frjálsar handfæraveiðar stuðla mjög að því að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu, líkt og er markmið fiskveiðistjórnarlaganna. Er hér átt við byggð í sjávarbyggðum landsins, sem margar hverjar eru brothættar. Auknar strandveiðar myndu styrkja mjög stoðir hinna dreifðu byggða landsins með sjálfstæðum smáútgerðum, hleypa nýju lífi í hnignandi sjávarbyggðir og styrkja fjölbreytt útgerðarform í sjávarútvegi. Baráttan fyrir frjálsum handfæraveiðum er réttindabarátta. Þetta er barátta fyrir jafnræði og atvinnufrelsi en takmarkanir á atvinnufrelsi mega ekki ganga lengra en nauðsyn krefur. Þetta er einnig barátta fyrir búseturétti í sjávarbyggðum landsins, sem byggist á atvinnufrelsinu. Sjávarbyggðirnar hafa byggt tilvist sína á fiskveiðum og aðgengi að fiskimiðunum. Þetta er barátta fyrir jöfnum búseturétti og rétti íbúa sjávarbyggðanna á landsbyggðinni, þar sem byggð hefur alla tíð byggst á fiskveiðum. Hægt er að tryggja þennan rétt með eflingu strandveiða án þessa að ógna fiskistofnum við landið. Ef vilji er til að ná sátt um fiskveiðistjórnarkerfið þá mun sú sátt felast í sanngjörnu veiðigjaldi og aðgengi að fiskveiðiauðlindinni með frelsi til handfæraveiða með náttúrulegum og eðlilegum takmörkunum. Mikilvægt er að koma á breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu í átt að réttlæti fyrir alla þjóðina og allar byggðir landsins sem byggja á jafnræði og atvinnufrelsi. Það verður einungis gert með því að virða rétt almennings til handfæraveiða við Íslandsstrendur. Höfundur er alþingmaður fyrir Flokk fólksins í Norðvesturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Eyjólfur Ármannsson Flokkur fólksins Sjávarútvegur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Harkaleg viðbrögð við friðsamlegum mótmælum Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Steinunni í 2. sæti Bjarki Bragason Skoðun Við getum ekki breytt sólinni - en við getum breytt klukkunni! Erla Björnsdóttir Skoðun 764 – landamæralaus tala skelfilegs ofbeldis Jón Pétur Zimsen Skoðun Sjávarútvegur framtíðarinnar – friðun, vistvænni veiðar og réttlátara kvótakerfi Arnar Helgi Lárusson Skoðun Og ári síðar er málið enn „í ferli“ Eva Hauksdóttir Skoðun Tjáningarfrelsi: Hvers vegna skiptir það máli? Ásgeir Jónsson Skoðun Loftslagsmál: að lifa vel innan marka jarðar Ingrid Kuhlman Skoðun Skattagrýla lifir Tómas Þór Þórðarson Skoðun Orðin innantóm um rekstur Hveragerðisbæjar Friðrik Sigurbjörnsson,Alda Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ung til athafna Hildur Rós Guðbjargardóttir,Eyrún Fríða Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað með Thorvaldsen börnin á árunum 1967 til 1974? Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi: Hvers vegna skiptir það máli? Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Sjávarútvegur framtíðarinnar – friðun, vistvænni veiðar og réttlátara kvótakerfi Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Loftslagsmál: að lifa vel innan marka jarðar Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Við getum ekki breytt sólinni - en við getum breytt klukkunni! Erla Björnsdóttir skrifar Skoðun Steinunni í 2. sæti Bjarki Bragason skrifar Skoðun 764 – landamæralaus tala skelfilegs ofbeldis Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Harkaleg viðbrögð við friðsamlegum mótmælum Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hraðbraut við fjöruna í Kópavogi - Kársnesstígur Ómar Stefánsson skrifar Skoðun Er ákveðin stétt sérfræðinga ekki lengur mikilvæg? Sædís Ósk Harðardóttir,Helga Þórey Júlíudóttir skrifar Skoðun Ekki eina ríkisleið í skólamálum, takk! Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Kynþáttahyggja forseta Bandaríkjanna og Grænland Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í landbúnaði – áskorun framtíðarinnar Jódís Helga Káradóttir skrifar Skoðun Orðin innantóm um rekstur Hveragerðisbæjar Friðrik Sigurbjörnsson,Alda Pálsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er okkar Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og lífsgæði í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Eru bara slæmar fréttir af loftslagsmálum? Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Nýtt byggingarland á Blikastöðum Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun 6 fríar klukkustundir og tæmdir biðlistar á leikskólum í Hveragerði Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Er B minna en 8? Thelma Rut Haukdal skrifar Skoðun Endurskoðun áfengislöggjafarinnar er verkefni stjórnmálanna Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Skattagrýla lifir Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Fleiprað um finnska leið Rúnar Sigþórsson skrifar Skoðun Og ári síðar er málið enn „í ferli“ Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hverju ertu til í að fórna? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Tvær akgreinar í hvora átt frá Rauðavatni að Markarfljóti Arnar Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Leikskóli er grunnþjónusta, ekki lúxus Örn Arnarson skrifar Skoðun Byggjum á því jákvæða! Ólína Þorleifsdóttir skrifar Skoðun Sundabraut á forsendum Reykvíkinga skrifar Sjá meira
Sjávarútvegur framtíðarinnar – friðun, vistvænni veiðar og réttlátara kvótakerfi Arnar Helgi Lárusson Skoðun
Skoðun Sjávarútvegur framtíðarinnar – friðun, vistvænni veiðar og réttlátara kvótakerfi Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Er ákveðin stétt sérfræðinga ekki lengur mikilvæg? Sædís Ósk Harðardóttir,Helga Þórey Júlíudóttir skrifar
Skoðun 6 fríar klukkustundir og tæmdir biðlistar á leikskólum í Hveragerði Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Njörður Sigurðsson skrifar
Sjávarútvegur framtíðarinnar – friðun, vistvænni veiðar og réttlátara kvótakerfi Arnar Helgi Lárusson Skoðun