Fær ekki nöfn samnemenda sem sögðu hann slugsa Árni Sæberg skrifar 30. maí 2023 12:21 Nemandinn stundaði MBA-nám við Háskóla Íslands. Vísir/Vilhelm Nemandi í MBA-námi við Háskóla Íslands hefur ekki rétt á því að fá afrit af framvinduyfirlitum hópfélaga sinna í hópverkefni án þess að þau séu nafnhreinsuð. Nemandinn hlaut lægri einkunn fyrir verkefnið en samnemendurnir þar sem þeir sögðu hann ekki hafa tekið þátt í verkefninu sem skyldi.
Þetta kemur fram í úrskurði áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema í máli nemandans. Nemendinn hafði kært ákvörðun háskólaráðs Háskóla Íslands frá 9. júní árið 2022. Í ákvörðun HÍ var kæranda synjað um aðgang að nöfnum höfunda framvinduyfirlita í hópverkefni í námskeiðinu Nýsköpun, sem kennt er í MBA-námi HÍ. Nemandinn fékk einkunnina 7,0 fyrir hópverkefnið en aðrir meðlimir hópsins fengu einkunnina 8,0. Hann fékk þá skýringu að samkvæmt framvinduyfirlitum samnemenda hans hefði hann lítið lagt af mörkum í fyrstu en tekið sig á þegar leið á verkefnavinnuna. Auk þess hlaut nemandinn einkunnina 0 í þeim hluta námskeiðsins sem sneri að þátttöku og virkni í kennslustundum. Kennarinn byggði það meðal annars á því að nemandinn hafði í lengri eða skemmri tíma ekki verið á Zoom í raun og veru, þrátt fyrir yfirlýsingar um annað, og þrátt fyrir að hafa tengst kennslustund í Zoom. Þessu vildi nemandinn ekki una og sendi skólanum tölvupóst þar sem hann fór fram á gögn sem vörpuðu ljósi á einkunnagjöf kennarans. Eftir kvörtun til deildarforseta viðskiptafræðideildar Háskólans fékk nemandinn aðgang að öllum gögnum sem lágu til grundvallar einkunn fyrir matsþættina „þátttaka og virkni“ og „hópverkefni“ í námskeiðinu Nýsköpun. Meðal gagna sem nemandinn fékk voru nafnhreinsuð framvinduyfirlit samnemenda hans varðandi hópverkefnið. Hótaði að fara með málið til umba Í kjölfarið áttu sér stað nokkur samskipti milli deildarforseta og nemandans vegna ákvörðunar um að afmá nöfn höfunda framvinduyfirlitanna. Í apríl árið 2022 sendi nemandinn rektor HÍ tölvupóst sem innihélt drög að kvörtunum til umboðsmanns Alþingis og til Persónuverndar. Rektor HÍ staðfesti móttöku með tölvupósti sama dag og upplýsti jafnframt að hann liti svo á að með erindinu hefði kærandi skotið niðurstöðu deildarforseta til háskólaráðs. Nemandinn dró kæruna síðar til baka. Sama dag sendi deildarforseti viðskiptafræðideildar tölvupóst á nemandann með rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun sinni að afhenda honum framvinduyfirlit án þess að nöfn höfunda þeirra, og samnemenda kæranda, væru birt. Var ákvörðunin rökstudd með því að einkahagsmunir nemendanna væru slíkir að ástæða hafi verið til að takmarka gögnin að hluta. Áreitti deildarforseta sem vildi hlífa samnemendum Nemandinn sendi í kjölfar þessa ítrekaða tölvupósta á deildarforseta þar sem þess var krafist að ákvörðunin yrði endurupptekin vegna efnislegra annmarka. „Ítrekaðar tölvupóstsendingar kæranda „nálguðust það að vera áreiti“ og að deildarforseta þætti framkoma hans þannig að samnemendur hans hefðu af því ríka hagsmuni að hann fengi ekki umbeðnar upplýsingar,“ segir úrskurði nefndarinnar. Þann 9. júní 2022 tók háskólaráð kæru nemandans til úrskurðar og hafnaði kröfu hans um að fá aðgang að nöfnum þeirra sem rituðu framvinduyfirlitin. Hafði engra hagsmuna að gæta Í niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar segir að nemandinn hafi haldið því fram að honum væri nauðsynlegt að fá upplýsingar um nöfn hvers aðila til að honum sé unnt að bregðast við því sem fram komi í skýrslunum. Nefndin taldi hins vegar að ljóst að nemandinn gæti brugðist við efni yfirlitanna og þeirra ummæla sem þar er að finna um þátttöku hans og framlag í verkefninu þó að ekki sé ljóst hver hópameðlima skrifaði hvaða framvinduyfirlit. Þannig kemur skýrlega fram í yfirlitunum hvaða atriði það eru sem samnemendur kæranda tiltóku um framlag hans og þátttöku. „Að mati nefndarinnar er því vandséð hvaða hagsmuni kærandi kann að hafa af því að fá upplýsingar um hver skrifaði hvaða yfirlit. Í því sambandi skiptir, að mati nefndarinnar, einnig máli að töluverður samhljómur er í framvinduyfirlitum um þátttöku og framlag kæranda,“ segir í úrskurði. Þá féllst nefndin á málsástæður HÍ þess efnis nafnleynd sé forsenda þess að raunhæft sé að beita jafningjamati við námsmat og miði að því að tryggja virkni nemenda og styðji við fjölbreytni í námsmati. Loks taldi nefndin að samnemendur nemandans hefðu af því ríka hagsmuni að hann fái ekki aðgang að nöfnum þeirra. Því væri öllum kröfum nemandans hafnað.
Háskólar Skóla - og menntamál Stjórnsýsla Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Sjá meira