Loks sigur hjá Rosenborg og Birkir kom inn sem varamaður Smári Jökull Jónsson skrifar 4. júní 2023 19:14 Birkir Bjarnason kom inn af bekknum hjá Viking í dag. Twittersíða Viking. Kristall Máni Ingason kom ekkert við sögu hjá Rosenborg sem vann 4-0 sigur á Ham Kam í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fimm Íslendingar komu við sögu í leikjum dagsins.
Rosenborg hefur ekki átt sjö dagana sæla í norska boltanum að undanförnu og tapaði meðal annars fyrir Stjördals-Blink í bikarnum á dögunum en liðið er í þriðju efstu deild í Noregi. Norska stórliðið vann hins vegar í dag öruggan 4-0 sigur á liði Ham Kam á heimavelli. Brynjar Ingi Bjarnason var í byrjunarliði Ham Kam í dag en var tekinn af velli á 61. mínútu þegar staðan var 3-0. Kristall Máni Ingason sat allan tímann á varamannabekk Rosenborg. Ari Leifsson var í byrjunarliði Strömgodset sem tapaði á heimavelli gegn Haugesund í dag. Lokatölur 2-1 en Ari spilaði í hægri bakvarðastöðunni hjá Strömgodset og var tekinn út af á 82. mínútu. Strömgodset er í 14. sæti deildarinnar og missti Haugesund upp fyrir sig með tapinu. Stórdramatískur markaleikur var spilaður í Stafangri þar sem Viking tók á móti Molde. Patrik Sigurður Gunnarsson þurfti að sækja boltann fjórum sinnum í netið en hann lék í marki Víking. Birkir Bjarnason kom inn sem varamaður hjá Viking skömmu eftir að Molde hafði jafnað metin í 3-3 á 75. mínútu. Sondre Bjorshol, leikmaður Viking, fékk rautt spjald skömmu síðar og Molde tryggði sér sigurinn á þriðju mínútu uppbótartíma þegar Ola Brynhildsen skoraði. Lokatölur 4-3 en Viking er í 7. sæti deildarinnar með 14 stig eftir níu leiki.
Norski boltinn Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Sjá meira