Saka Þorgerði Katrínu um rógburð og krefjast afsökunarbeiðni Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 10. júní 2023 15:05 Í yfirlýsingunni segjast samtökin „harma þennan rógburð alþingismannsins úr pontu Alþingis Íslendinga.“ Vísir/Vilhelm Samtök fyrirtækja í landbúnaði segja Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formann Viðreisnar hafa gefið í skyn í umræðum á Alþingi í gær að samtökin styddu ekki við Úkraínumenn í baráttu sinni gegn innrás Rússlands.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu samtakanna vegna umræðu á Alþingi í gær, 9. júní 2023, um framlengingu niðurfellingar tolla á vörur upprunnar í Úkraínu. Þá kemur fram að Þorgerður Katrín hafi haldið því ranglega fram að formaður samtakanna væri heiðursræðismaður Rússa á Íslandi og sagt það setja ábendingar samtakanna, um að vænlegra væri að velja önnur stuðningsform en niðurfellingu tolla til að styðja við Úkraínu, í enn verra ljós. Í yfirlýsingunni segjast samtökin „harma þennan rógburð alþingismannsins úr pontu Alþingis Íslendinga.“ „Formaður Samtaka fyrirtækja í landbúnaði er ekki og hefur aldrei verið heiðursræðismaður Rússa á Íslandi né borið nokkurn annan titil sem nokkurs konar opinber tengiliður við Rússland. Fara samtökin fram á formlega afsökunarbeiðni þingmannsins enda ljóst að um tilhæfulausa árás á samtökin er að ræða.“ Fram kemur að samtökin hafi lagst gegn niðurfellingunni á sínum tíma þar sem ljóst var að þessi ákvörðun myndi einungis hafa áhrif á landbúnaðarvörur þar sem tollar á aðrar vörur höfðu áður verið felldir niður. Þannig hafi þessi tiltekni stuðningur einungis verið greiddur af einni starfsstétt á Íslandi – íslenskum bændum. Ekkert hagrænt mat lagt á stöðu bænda og afurðastöðva Þá hafi samtökin bent á að mun vænlegra væri fyrir Ísland að fylgja fordæmi Noregs, sem hefur ekki fellt niður tolla á vörur frá Úkraínu, heldur styrkir Úkraínu með fjárframlögum og öðrum stuðningi í gegnum alþjóðastofnanir á borð við Alþjóðabankann, Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna og Evrópska þróunarbankann. Þá bendi allt til þess að Sviss hafi einnig stutt Úkraínu með fjárframlögum og öðrum stuðningi með aðkomu alþjóðastofnana, en ekki með niðurfellingu tolla á úkraínskar vörur. „Auk þess sem kostnaður þessarar tilteknu stuðningsaðgerðar hefur eingöngu verið borinn af íslenskum bændum, þá gekk íslenska ákvæðið lengra en sambærileg ákvæði í Bretlandi og ESB. Bæði Bretland og ESB settu varúðarreglu í sín ákvæði sem gerði þeim kleift að afturkalla niðurfellinguna ef hún leiddi til tjóns fyrir framleiðendur landbúnaðarvara í Bretlandi og ESB. Enga slíka varúðarreglu var að finna í íslenska ákvæðinu. Eins voru engar mótvægisaðgerðir í boði fyrir íslenska framleiðendur öfugt við bændur innan ESB. Þann 28. apríl sl. komst framkvæmdastjórn ESB að samkomulagi við stjórnvöld í þessum ríkjum en það gerir ráð fyrir að 15 milljarðar króna verði greiddir til bænda í þessum ríkjum vegna tjóns sem aukinn innflutningur hefur valdið. Þá hefur verið tilkynnt um sérstakan stuðningspakka upp á 52 milljarða króna fyrir Pólland til framleiðenda landbúnaðarvara. Eru þessar upphæðir til viðbótar við þá 75 milljarða króna sem deilt var milli aðildarríkja sambandsins árið 2022. “ Ljóst var af greinargerð með frumvarpinu sem samþykkt var á Alþingi 15. júní 2022 að við undirbúning frumvarpsins var ekki aflað neinna gagna um mögulegar afleiðingar innflutnings á innlenda framleiðslu. Þá lá ekki fyrir greining á hve mikið magn af landbúnaðarvörum gæti verið flutt hingað til lands. Ekkert hagrænt mat var lagt á stöðu bænda og afurðastöðva og hvaða áhrif aukinn innflutningur í einstökum vöruflokkum myndi hafa á stöðu þeirra og rekstur á gildistíma undanþágunnar. “ Þá er tekið fram að í ljósi alls framangreinds hafi Samtök fyrirtækja í landbúnaði lagst gegn því að tollar á landbúnaðarvörur frá Úkraínu yrðu felldir niður að nýju og bent á að vænlegra væri að fylgja fordæmi Noregs og styðja við Úkraínu með fjárframlögum og öðrum stuðningi í gegnum alþjóðastofnanir. „Með þeim hætti er tryggt að öll þjóðin taki þátt í stuðningi við Úkraínu á erfiðum tímum.“
Landbúnaður Alþingi Viðreisn Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Sjá meira