Komst undan lögreglu á hlaupum Samúel Karl Ólason skrifar 11. júní 2023 07:36 Í dagbók lögreglu segir að þó nokkrar tilkynningar um veikindi, hávaðakvartanir og tilkynningar um fólk í annarlegu ástandi hafi ratað á borð lögreglu. Vísir/Vilhelm Lögregluþjónar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ætluðu í gærkvöldi að hafa afskipti af ökumanni bíls í miðbænum. Sá komst undan lögreglu en bíllinn fannst mannlaus í lausagangi. Vegfarandi benti lögreglu á að ökumaðurinn hefði hlaupið inn í garð þar skammt frá og komist undan.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu. Annar ökumaður sem var stöðvaður í akstri er grunaður um ölvun við akstur og akstur undir áhrifum fíkniefna. Þar að auki kom í ljós að hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Var hann því handtekinn. Þá var einn ökumaður til viðbótar sektaður þar sem bíllinn sem hann ók reyndist með fjögur nagladekk. Í dagbók lögreglu segir að þó nokkrar tilkynningar um veikindi, hávaðakvartanir og tilkynningar um fólk í annarlegu ástandi hafi ratað á borð lögreglu. Einnig barst tilkynning um ungmenni sem voru sögð kasta grjóti í rúðu húss. Sá sem þar bjó sagði þau ítrekað aka framhjá húsinu á rafskútu og kasta grjóti í rúðurnar. Engin ungmenni sáust þó á vettvangi. Leigubílstjóri kallaði eftir aðstoð lögreglu í gærkvöldi vegna vandræða með viðskiptavin. Einnig var beðið um aðstoð vegna einstaklings sem hafði fallið og hlotið áverka á höfði. Sá var fluttur á slysadeild. Tilkynning barst um eld í iðnaðarhúsnæði í gærkvöldi og var sjúkralið einnig boðað á vettvang. Lögreglunni barst einnig tilkynning um íkveikju í Árbæ en frekari upplýsingar um þau atvik fylgja ekki.
Lögreglumál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira