„Ísland á EM er alltaf risastórt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2023 10:31 Ágúst Orri Þorsteinsson fagnar marki sínu á móti Spánverjum í gær. Getty/Seb Daly Ágúst Orri Þorsteinsson skoraði mark Íslands í 2-1 tapi á móti gríðarlega sterku spænsku landsliði í fyrsta leik íslenska nítján ára landsliðsins á EM á Möltu.
Íslenska liðið lenti 2-0 undir og missti mann af velli með rautt spjald á 87. mínútu leiksins en íslensku strákarnir létu það ekki stoppa sig og Ágúst Orri skoraði á annarri mínútu í uppbótatíma. „Ísland á EM er alltaf risastórt. Þetta er í fyrsta skiptið sem íslenska nítján ára landsliðið fer á EM og það er bara geggjað,“ sagði Ágúst Orri Þorsteinsson við Huldu Margréti Óladóttur eftir leikinn. „Mér fannst við ekki halda nógu vel í boltann í fyrri hálfleik en um leið og við þorðum í seinni hálfleik þá sýndum við að við erum allir geggjaðir í fótbolta og að við getum haldið í boltann. Mér fannst við ekki halda nógu vel í boltann í fyrri en bættum úr því í seinni,“ sagði Ágúst Orri. Spænska landsliðið var ekki búið að fá á sig mark í allir undankeppninni og var því Ágúst sá fyrsti til að skora hjá þeim. „Tilfinningin er geggjuð að skora en það er bara pirrandi að skora 2-1 mark. Hefði þetta verið jöfnunarmark þá hefði þetta verið miklu sætara,“ sagði Ágúst Orri en hvernig metur hann möguleikana í riðlinum. „Við getum alltaf komist upp úr þessum riðli. Við vinnum Norðmenn og vinnum síðan Grikkina. Það er markmiðið. Við þurfum bara að berjast eins og við gerum alltaf, vinna sem lið og þá getur allt gerst,“ sagði Ágúst. Næsti leikur íslensku strákanna er á móti Norðmönnum á föstudaginn.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Handbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti „Við erum brothættir“ Fótbolti Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Fótbolti „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Fótbolti Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar Körfubolti Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Handbolti „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Körfubolti „Nauðsynlegt fyrir íslensk lið að taka þátt í svona keppni“ Sport Porto lagði Val í Portúgal Handbolti Fleiri fréttir „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Sjá meira